Fjallkyrjur I vor 2023

Janúar - maí

Fjallkyrjur I – Þar sem hjartað slær

Fjallkyrjur I er nýjung hjá Fjallafélaginu. Við erum stolt af því að bjóða uppá lokaðan hóp fyrir konur,  sem vilja koma sér af stað í fjallgöngum og njóta útiveru í skemmtilegum hópi kvenna.

Hópurinn hentar þeim sem eru að byrja í göngum og þeim vanari sem vilja njóta og ganga aðeins hægar yfir.

Dagskráin hefst í lok janúar og stendur út maí. Farið verður í göngur annað hvert miðvikudagskvöld kl 18 og annan hvern sunnudag kl 10. 

Endað er á skemmtilegri gönguhelgi í Básum í lok maí, frá föstudegi til sunnudags. Greiða þarf sérstaklega fyrir rútu og gistingu þá helgi.

Fyrir göngurnar hittumst við á höfuðborgarsvæðinu og sameinumst í bíla.

Ef veðurspá er óhagstæð getur dagskráin breyst. Einnig kann í einhverjum tilvikum að vera nauðsynlegt að gera aðrar breytingar á dagskránni svo sem að ganga á annað fjall en upphaflega var áætlað eða að fella göngu niður vegna sérstaklega óhagstæðra skilyrða. Ítarlegar upplýsingar eru sendar í tölvupósti tímanlega fyrir göngu og þurfa því þátttakendur ávallt að fylgjast með tölvupósti sínum. Einnig er lokaður Facebook hópur notaður til samskipta.

Fjallkyrjur I í hnotskurn
  • Gengið á 4x í mánuði frá janúar til maí – á miðvikudögum og sunnudögum
  • 19 fjallaferðir í heildina, þar af ein helgarferð
  • Gott utanumhald og frábær félagsskapur
Fararstjórar

Kolbrún Björnsdóttir stýrir verkefninu en með henni verða Bára Mjöll Þórðardóttir, Dögg Ármannsdóttir og Eyrún Viktorsdóttir

Innifalið
  • Leiðsögn, fræðsla og utanumhald í 19 ferðum
  • Afsláttarkjör hjá samstarfsaðilum – Fjallakofinn og Garminbúðin

Ítarlegan búnaðarlista má finna hér.

Öryggismál, tryggingar og skilmálar

Mikil áhersla er lögð á að tryggja hámarks öryggi í öllum ferðum Fjallafélagsins. Fjallgöngur fela ávallt í sér áhættu og eru þátttakendur á eigin ábyrgð í ferðunum. Þátttakendur eru ekki tryggðir í ferðum með Fjallafélaginu og eru hvattir til að snúa sér til tryggingafélags síns og kaupa þar viðeigandi tryggingar. Skilmálar Fjallafélagsins eru aðgengilegir hér. Þátttökugjald verður ekki endurgreitt eftir 21. janúar 2023.

TÍMALENGD

4,5 mánuðir

TEGUND FERÐAR

Gönguhópur

INNIFALIÐ

Sjá lýsingu

ERFIÐLEIKASTIG

VERÐ

85.000 kr.

Availability: In stock

Product price
Additional options total:
Samtals:

DAGSKRÁ

Dags Ganga Lengd Hækkun
22. jan sun. Mosfell 4 km 220 m
1. feb mið. Búrfell og Búrfellsgjá 5,5 km 130 m
5. feb sun. Hjálmur 5 km 380 m
15. feb mið. Stórhöfði og Hvaleyrarvatn 6 km 150 m
19. feb sun. Reykjadalur 8 km 330 m
1. mars mið. Tröllafoss 4.5 km 160 m
5. mars sun. Stóri Meitill 5 km 300 m
15. mars mið. Heiðmörk 5 km 150 m
19. mars sun. Húsfell 10 km 280 m
29. mars mið. Selfjall 4,5 km 120 m
2. apríl sun. Þyrill 8 km 450 m
12. apríl mið. Arnarfell og Bæjarfell 5 km 225 m
16. apríl sun. Brynjudalur / Botnsdalur 7,5 km 250 m
26. apríl mið. Reykjaborg og Lali 6,5 km 350 m
30. apríl sun. Stóri og Litli Reyðarbarmur 8 km 380 m
10. maí mið. Arnarfell á Þingvöllum 5 km 150 m
14. maí sun. Glymur yfir Hvalskarðsá 8 km 420 m
24. maí mið. Helgafell í Hafnarfirði 6 km 280 m
26.-28. maí helgi Goðaland – Þórsmörk