TOPPAÐU ÞIG MEÐ
fjallafélaginu
FÁLKAKLETTUR
Fálkaklettur er klettastígur eða Via ferrata sem Fjallafélagið rekur í Esjunni. Í boði er að fara mis erfiðar leiðir þannig að allir geta fundið áskorun við sitt hæfi.
FJALLAFÉLAGIÐ
Einstaklega samheldinn og góður hópur sem elskar útiveru er það sem einkennir Fjallafélagið. Í gegnum samveruna út í náttúrunni upplifir fólk ævintýrin saman og vináttubönd myndast.
Bræðurnir Haraldur Örn og Örvar Þór Ólafssynir standa á bak við Fjallafélagið en Haraldur Örn stofnaði félagið árið 2009.
Haraldur á að baki yfir 20 ára farsælan feril í fjallamennsku og heimskautaferðum en meðal leiðangra hans eru Mt. Everest, Norðurpóllinn, Suðurpóllinn, Aconcagua, Mt. McKinley, Elbrus, Kilimanjaro, Mt. Blanc og Grænlandsjökull.
Örvar hefur verið fararstjóri og verkefnastjóri hjá Fjallafélaginu síðan 2012 en einnig sinnt fararstjórn hjá Ferðafélagi Íslands síðan 2010. Fjallabakterían kviknaði fyrir alvöru þegar hann gekk yfir Vatnajökul 16 ára gamall og hefur hann sótt ýmis námskeið s.s. í jöklaleiðsögn, rötun og fyrstu hjálp í óbyggðum.
FJALLAFÉLAGIÐ
Einstaklega samheldinn og góður hópur sem elskar útiveru er það sem einkennir Fjallafélagið. Í gegnum samveruna út í náttúrunni upplifir fólk ævintýrin saman og vináttubönd myndast.
Bræðurnir Haraldur Örn og Örvar Þór Ólafssynir standa á bak við Fjallafélagið en Haraldur Örn stofnaði félagið árið 2009.
Haraldur á að baki yfir 20 ára farsælan feril í fjallamennsku og heimskautaferðum en meðal leiðangra hans eru Mt. Everest, Norðurpóllinn, Suðurpóllinn, Aconcagua, Mt. McKinley, Elbrus, Kilimanjaro, Mt. Blanc og Grænlandsjökull.
Örvar hefur verið fararstjóri og verkefnastjóri hjá Fjallafélaginu síðan 2012 en einnig sinnt fararstjórn hjá Ferðafélagi Íslands síðan 2010.