Kólumbía – Eldfjöll, kaffi og Karíbahaf 18. janúar 2025

18.01.2025

Komdu með okkur í vel skipulagaða ferð um undraheima Kólumbíu, földu perlu Suður-Ameríku. Fjölbreytileiki er það sem einkennir menningu og náttúru þessa einstaka lands. Í Kólumbíu er að finna heillandi borgir sem iða af mannlífi, græna regnskóga, gullnar strendur Karíbahafs og snæviþökt fjöll.

Ímynd Kólumbíu er tengd tímabili þegar eiturlyfjabarónar réðu ríkjum en fæstir vita að miklar breytingar hafa átt sér stað í landinu síðustu 20 ár og hefur flestu verið snúið til betri vegar. Þar sem áður var varasamt að ferðast hafa listamenn tekið völdin og gestir eru boðnir velkomnir.

Við byrjum á að skoða sögulega staði í Bógóta höfuðborg Kólumbíu. Þaðan höldum við til svæðis sem nefnist Kaffiþríhyrningurinn en eins og nafnið ber með sér þá er hið heimsfræga kólumbíska kaffi framleitt þar. Svæðið er á heimsminjaskrá UNESCO (Coffee Cultural Landscape).

Við göngum fjögurra daga magnaða gönguleið um stórbrotna náttúru í hlíðum Andesfjallanna. Leiðin liggur í hlíðum eldfjallsins Tolima sem er innan Los Nevados þjóðgarðsins. Gangan endar í bænum Salento sem er miðpunktur kaffihéraðsins og vinsæll ferðamannastaður. Hér gefum við okkur góðan tíma til að upplifa besta kaffi í heimi og hvernig það verður til. Einnig skoðum við náttúruperlur á svæðinu.

Ferðin endar slökun og skoðunarferðum við Karíbahafið í sögufrægu borginni Cartagena.

Fimm ástæður til að ferðast til Kólumbíu
  • Náttúrufegurð
  • Mannlífið
  • Kaffi
  • Maturinn
  • Strendur Karíbahafsins
Fararstjóri:

Haraldur Örn Ólafsson

Fjöldi þátttakenda:

Lágmark 10 og hámark 12

Búnaður:

Búnaðarlisti verður sendur til hópsins.

Tryggingar:

Athugið að engar tryggingar eru innifaldar í verði ferðarinnar og mikilvægt er að þátttakendur séu að fullu tryggðir. Þátttakendur sjá sjálfir um að kaupa forfalla- og ferðatryggingu. Fjallafélagið mælir með að þátttakendur kaupi sérstaka forfallatryggingu um leið og ferðin er bókuð. Mikilvægt er að ganga úr skugga um að tryggingin nái yfir kostnað við ferðina í heild sinni (ekki aðeins yfir fargjald og gistikostnað).

Innifalið:
  • Íslensk leiðsögn
  • Innlendir leiðsögumenn
  • Skoðunarferðir skv. ferðalýsingu
  • Innanlandsflug
  • Rútuferðir skv. ferðalýsingu
  • Öll gisting
  • Matur skv. ferðalýsingu
Ekki innifalið:
  • Millilandaflug
  • Drykkir
  • Matur sem ekki er í ferðalýsingu hér að ofan
  • Þjórfé
Bókun:

Hægt að bóka ferðina hér á síðunni með því að smella á “Bóka ferð”. Einnig er hægt að senda tölvupóst á fjallafelagid@fjallafelagid.is.

Einstaklingsherbergi:

Aukagjald fyrir einstaklings herbergi er 54.000 kr

Skilmálar:

Mikilvægt er að þátttakendur kynni sér skilmála Fjallafélagsins sem hægt er að hálgast hér: https://fjallafelagid.is/skilmalar/

 

TÍMALENGD

13 dagar

TEGUND FERÐAR

Utanlandsferð

INNIFALIÐ

Sjá lýsingu

ERFIÐLEIKASTIG

VERÐ

kr. 493.000

Out of stock

Uppselt er í ferðina / hópinn. Þú getur skráð þig á biðlista og við látum þig vita um leið og hægt er að skrá sig að nýju.

DAGSKRÁ

Dagur 1, laugardagur 18. janúar. Komið til Bogóta 

Velkomin til höfuðborgar Kólumbíu! Þar sem millilandaflug er ekki innifalið í þessari ferð, er það á ábyrgð hvers og eins að bóka það. Fjallafélagið mun senda út tillögu að flugi þegar lágmarksþátttöku er náð og ferðin staðfest. Ekki er dagskrá þennan dag og er því hægt að lenda hvenær sem er þennan dag. Við gistum á góðu hóteli í miðborg Bogotá.

Innifalið: Gisting á góðu hóteli.

Dagur 2, sunnudagur 19. janúar. Skoðunarferð um Bogóta 

Við förum í skoðunarferð um sögulegan hluta Bogóta sem byggður var á nýlendutímanum. Við förum í kláf á Monserrate hæðina og skoðum kirkjuna sem stendur þar hátt yfir miðborginni í 3.152 m. hæð og njótum útsýnisins. Göngum um hið sögulega La Candelaria hverfi, skoðum La Plaza Bolivar, safn hins fræga kólumbíska listamanns Botero og hið heimsfræga Gullsafn. Lengd: 6-7 klst.

Innifalið: Morgunmatur og gisting á góðu hóteli.

Dagur 3, mánudagur 20. janúar. Bogóta – Ibague – Juntas (1850 m) 

Eftir morgunverð leggjum við af stað í átt að Ibague, höfuðstað Tolima fylkis. Landslagið á leiðinni um Magdalena dalinn er skemmtilegt og áhugavert. Höldum áfram Combeima dalinn til bæjarins Juntas sem er við Los Nevados þjóðgarðinn. Aksturinn tekur alls um 5 klst. Í Juntas gistum við á mjög fallegu hóteli með ótrúlegu útsýni yfir fjallshryggi og skóglendi.

Innifalið: Gisting, morgunverður og kvöldverður.

Dagur 4, þriðjudagur 21. janúar. Ganga um Alto del Oso skarð (2.850m.)

Í dag hefst ganga um fáfarið og áhrifamikið fjallalandslag Kólumbíu upp í fjallaskarðið Alto del Oso í 2.850m. hæð. Við fáum fallegt útsýni til stórbrotinna eldfjalla eins og Tolima fjalls. Förum niður Normandia-dalinn fram hjá bóndabæjum og stoppum á einum þeirra og borðum hádegisverð með heimamönnum. Næst göngum við að gíg Machin eldfjallsins og njótum útsýnisins. Ganga dagsins endar á búgarðinum La Florida sem er í 2.010m. hæð þar sem við gistum í tjöldum. Hér er töfrandi útsýni yfir Toche dalinn. Þetta er lengsti göngudagurinn 18 km og tekur um 9 klst. Hæðarhækkun 1.000m.

Innifalið: Gisting í tjöldum, morgunverður, hádegisverður og kvöldverður.

Dagur 5, miðvikudagur 22. janúar. Ganga til Toche (2.000m.)

Eftir góða hvíld höldum við af stað niður í Toche dalinn. Leiðin liggur um fjallendi þar sem eru kaffi- og bananaekrur. Við fáum tækifræi til að upplifa framandi landslag og mannlífið í fjöllunum. Endum gönguna í bænum Toche sem er þjónar svæðinu sem söfnunarstaður þaðan sem afurðir svæðisins eru fluttar á markaði Ibague og Calarca. Bærinn hef haldið sínum upprunalega stíl sem einkennir kaffihéruð Kólumbíu. Við gistum yfir nótt á einföldu hóteli. Gönguvegalengd er 12 km. Sem tekur um 6 klst.

Innifalið: Gisting á einföldu hóteli, morgunverður hádegisverður og kvöldverður.

Dagur 6, fimmtudagur 23. janúar. Gengið um vaxpálmaskóga

Í dag fáum við að kynnast hinum einstöku vaxpálmum sem eru hæstu pálmatré í heimi og geta náð allt að 60m. hæð. Við byrjum á að fá far með jeppum að upphafsstað göngunnar í 2.690m. hæð þar sem ævintýrið okkar hefst í gegnum vaxpálmaskóginn. Göngunni lýkur bænum La Cabaña de Doña Marleni (2640 m) þar sem við njótum Aguapanela með osti. Við tökum okkar aftur far með jeppum til La Carbonera sem er einstakur útsýnisstaður. Höldum svo áfram að gististað okkar á búgarðinum El Rocio þar sem við gistum í tveggja manna herbergjum á einstaklega fallegum stað. Gönguvegalengd er 5,3 km sem tekur 4-5 klst. Hæðarhækkun er um 310m.

Innifalið: Gisting, morgunverður, hádegisverður og kvöldverður.

Dagur 7, föstudagur  24. janúar. Gengið til bæjarins Salento (1.919m.)

Í dag göngum við að mestu niður í móti um fornan stíg er nefnist Camino Nacional og er frá nýlendutímanum. Njótum fallegs útsýnis og höldum áfram niður á gróskumiklar kaffiplantekrur Salento-svæðisins. Eftir að komið er til Salento er frjáls tími til að kanna þennan heillandi bæ. Við gistum á góðu hóteli um nóttina. Gönguvegalengd er 16 km. Sem gengin er á 4-5 klst. Lækkun: 1131m.

Innifalið: Gisting á góðu hóteli, morgunverður og hádegisverður.

Dagur 8, laugardagur 25. janúar. Kaffiupplifun 

Við tökum daginn rólega en á dagskrá er mögnuð kaffiupplifun. Fræðumst um kaffiframleiðsluna frá fræi til kaffibollans. Við fáum kaffismökkun til að fræðast um mismunandi gerðir og eiginleika kaffisins frá Kólumbíu. Seinnipartinn er frjáls tími til að njóta þessa litríka miðpunktar í kaffihéraði Kólumbíu (Zona Cafetera). Gisting á sama hóteli í Salento.

Innifalið: Gisting, morgunverður og skoðunarferð.

Dagur 9, sunnudagur 26. janúar. Gönguerð um Barbas Bremen friðlandið og Filandia

Við höldum í dagsferð til bæjarins Filandia sem er minna þekktur en Salento og fáum við að upplifa þar einstaka menningu Kaffihéraðs Kólumbíu (Zona Cafetera), fallegar byggingar og handverk. Förum í göngu um Barbas Bremen friðlandið þar sem er einstök náttúrufegurð auk þess sem við eigum möguleika á að sjá Howler apa í trjánum. Einnig munum við sjá fjölmargar fuglategundir, drekaflugur, blóm, fornleifar og fallega fossa. Gangan er 5 km. og tekur 3-4 klst. Í lok dags höldum við aftur til Salento þar sem við gistum á sama hóteli.

Innifalið: Gisting og morgunverður.

Dagur 10, mánuagur 27. janúar. Innanlandsflug til Cartagena við Karabíska hafið

Við yfirgefum Kaffihéraðið og höldum til borgarinnar Cartagena við Karabíska hafið. Hópnum er ekið út á flugvöll í borginni Pereira þar sem við tökum innanlandsflug til Cartagena. Við gistum á góðu hóteli í gamla hluta bæjarins. Síðdegis förum við í gönguferð innan gömlu borgarmúranna með leiðsögumanni en þessi hluti borgarinnar er á lista UNESCO yfir menningarverðmæti.

Innifalið: Gisting á góðu hóteli, morgunverður, innanlandsflug, akstur til og frá flugvöllum og leiðsögn.

Dagur 11, þriðjudagur 28. janúar. Hálfs-dags skoðunarferð um Cartagena Huacachina

Cartagena var stofnaður á nýlendutímanum árið 1533 og er einn fallegasti og áhugaverðast bær Kólumbíu. Höfnin í bænum var sú mikilvægasta í Karabíska hafinu á nýlendutíma Spánverja. Við byrjum daginn á skoðunarferð um gamla bæinn með leiðsögumanni. Skoðum meðal annars San Felipe virkið, “Popa” klaustrið þar sem er einstakt útsýni yfir borgina. Seinnipartinn er frjáls tími til að njóta bæjarins.

Innifalið: Gisting á góðu hóteli, morgunverður og skoðunarferð.

Dagur 12, miðvikudagur 29. janúar . Skoðunarferð til La Boquilla

Við höldum í mjög áhugaverða skoðunarferð til La Boquilla sem er lítið fiskisamfélag norður af Cartagena. Hér fáum við einstakt tækifæri til að kynnast menningu svæðisins sem hefur haldist óbreytt um aldir. Skoðum fenjaskóga (mangroves) og kynnumst matargerðarlist heimamanna og borðum hádegismat með þeim. Eftir hádegismatinn höldum við aftur til Cartagena.

Innifalið: Gisting á góðu hóteli, morgunverður, hádegisverður og skoðunarferð.

Dagur 13, fimmtudagur 30. janúar. Heimferð

Nú kveðjum við Kólumbíu og höldum heim á leið. Hópnum er ekið út á flugvöllinn í Cartagena. Við
bendum á þann möguleika á að framlengja ferðina og er hægt að hafa samband við okkur ef áhugi er á
slíku.

Innifalið: Morgunverður og akstur á flugvöll.