Kyrrlátt á Vífilsfelli

Hópurinn gekk á dögunum á Vífilsfell í einstakri veðurblíðu. Þessar skemmtilegu myndir tók Ingólfur Björn sem er að ljúka sínu fjórða ári með Fjallafélaginu.

Þetta var næstsíðasta ganga ársins en að venju er gengið á Úlfarsfell á gamlársdag. Þetta var ein af þessum göngum þar sem enginn langaði til að fara heima eftir gönguna; það líður öllum bara svo vel í veðurstillunni – fegurðin allt í kringum og lungum full af súrefni.

Vífilsfellið er skemmtilegt en reynir á mann því blessuðu móbergsklappirnar á efri hlutanum geta verið hálar og það átti við þennan dag. Við vorum á hálkubroddunum og svo er búið að setja upp kaðal sem er afskaplega kærkomið fyrir göngufólkið.