Árið kvatt á Úlfarfelli

GLEÐILEGT ÁR FJALLAFÓLK NÆR OG FJÆR!Fjallafélagar luku árinu með stæl á gamlársdag á Úlfarsfelli sem er löngu orðin hefð hjá okkur. Allir í hátíðarskapi og luku göngunni með því að skála og gæða sér á smákökum, hangikjöti, gröfnu lambi og öðrum kræsingum. Það var hvasst á toppnum en komið þetta fína veður í skóginum á niðurleiðinni. Alltaf svo frábært að ljúka árinu með auka súrefnisskammt í lungunum.Við kveðjum árið 2018 með þakklæti í hjarta fyrir góðar samverustundir á fjöllum. Hlökkum til nýrra ævintýri á árinu sem nú er gengið í garð!