Það var ekki beint bjart útlitið á bílastæðinu við Akrafjall í fyrstu göngu ársins. Gríðarlega þykkt og mikið snjóél var nýbyrjað að blása snjónum yfir svæðið. Klukkan orðin 10 á laugardagsmorgni og ennþá hálfgert myrkur. Hópurinn samankominn í fyrstu göngu ársins, það var ekkert annað að gera en að kýla á það og vona það besta!
Við ákváðum að fara á Háahnjúk í staðinn fyrir Geirmundartind, enda örlítið styttri ganga – það hentar betur í þetta skiptið.
Það rættist mjög vel úr göngunni þrátt fyrir dökkt útlit í byrjun, það var hægur vindur með snjókomu sem var ekkert að angra okkur. Það fór þó að hvessa þegar við áttum um 2-300 metra eftir upp á Háahnúk en áfram arkaði hópurinn á toppinn. Þangað var hópurinn samankominn eftir tæplega 2 klst göngu og naut þess að borða nestið…og enn snjóaði!
Þetta var flott fyrsta ganga þar sem fullt af nýliðum brutu ísinn, frábært að bjóða nýja meðlimi velkomna í Fjallafélagið. Gangan á Háahnúk (556 m.) tók 2 klst. og 45 mínútur.
Árið fer vel af stað!