Japan – Göngur, hjól & menning 20.9.2026
20.09.2026
Upplifðu menningu, sögu og náttúru Japans á göngu og á hjóli!
Japan er einstakt land þar sem gamlar hefðir og nútími sameinast. Náttúrufegurð landsins heillar allt árið um kring. Frábær matur, heitar laugar og rík menning skapa ógleymanlega upplifun.
Ferðin hefst í líflegri stórborginni Tókýó, þar sem framsækni og hefðir fara hönd í hönd. Næst tekur við ganga á Mt. Fuji, tákn Japans og á heimsminjaskrá UNESCO, sem er heillandi áskorun og með töfrandi sólarupprás á tindinum. Í Hakone sem er mest heimsótti þjóðgarður Japans er kyrrðin ríkjandi og gott að slaka á í baðstofum (onsen) þar sem friðsæl náttúra endurnæra líkama og sál.
Í Kyoto, menningarlegri perlu Japans, njótum við fornra hofa, fallegra garða og UNESCO-skráðra minja sem endurspegla aldagamlar japanskar hefðir. Shimanami Kaido eða „Brýnar sjö“ er einstakt hjólaævintýri þar sem þú ferð yfir sjö brýr sem tengja nokkrar eyjar í Seto-innhafi. Þessi tveggja daga rólega hjólaleið býður upp á stórfenglegt sjávarútsýni og fallegar eyjar, sem gerir ferðina jafn skemmtilega og hún er áhrifarík. Þetta er fremur flöt hjólaleið með hækkun upp á brýrnar og ætti að henta hjólreiðafólki á öllu getustigi.
Í Hiroshima heimsækjum við áhrifamikinn Friðargarð og safn, þar sem saga borgarinnar snertir hjarta hvers ferðalangs. Þar er minning þeirra sem létust í kjarnorkuárásinni 1945 heiðruð og saga borgarinnar lifandi gerð með minnismerkjum og kennileitum. Friðargarðurinn og safnið skapa dýrmæta upplifun sem skilur eftir sig djúp spor, en Hiroshima er einnig orðin lífleg menningarmiðstöð sem býður upp á fjölbreytta menningu, framúrskarandi mat og blómlegt borgarlíf í dag.
Leiðin liggur næst á Miyajima-eyju, þar sem Tori-hliðið og fjallið Mt. Misen bjóða upp á óviðjafnanlegt útsýni. Að lokum snúum við til baka til Tokyo með háhraðalestinni Shinkansen, rík af ógleymanlegum minningum.
Fararstjóri:
Dagrún Árnadóttir
Dagrún Árnadóttir, verkefnastjóri, hefur stundað útivist frá því hún man eftir sér. Meðal annars æfir hún hjólreiðar og stundar fjallgöngur og sjósund. Hún hefur hjólað Westfjord Way Challenge, Wow cyclothon ásamt öðrum viðburðum innanlands og utan. Hún er alltaf í ævintýrum, skipuleggur útivistarferðir og fer sjaldnast án hjólsins og espresso kaffikönnunnar.
Fjöldi þátttakenda:
Lágmark 10 og hámark 14
Búnaður:
Búnaðarlisti verður sendur til hópsins.
Tryggingar:
Athugið að engar tryggingar eru innifaldar í verði ferðarinnar og mikilvægt er að þátttakendur séu að fullu tryggðir. Þátttakendur sjá sjálfir um að kaupa forfalla- og ferðatryggingu. Fjallafélagið mælir með að þátttakendur kaupi sérstaka forfallatryggingu um leið og ferðin er bókuð. Mikilvægt er að ganga úr skugga um að tryggingin nái yfir kostnað við ferðina í heild sinni (ekki aðeins yfir fargjald og gistikostnað).
Innifalið:
- Rútur til og frá flugvelli í Tokyo
- Allar ferðir innan Japan, þar með talið há-hraðalestin (Shinkansen)
- Hótel í Tokyo og Ömishima Island með morgunverði
- Hótel í Hakone með Onsen í tvær nætur með morgunverði
- Ryokan hótel með Onsen í Kyoto í tvær nætur með morgunverði
- Hótel í Hiroshima með morgunverði
- Hádegisverðir eins og taldir eru upp í lýsingu
- Kvöldverðir eins og taldir eru upp í lýsingu
- Skoðunarferð / ganga um Tokyo, Kyoto og Hiroshima
- Ganga á fjallið Mt. Fuji með leiðsögn, og gisting í skála á leiðinni
- Gönguferð í bakgarði Kyoto, milli tveggja hofa með leiðsögn
- Dagsferð til Miyajima Island og ganga á fjallið Mt Miesen með leiðsögn
- Enskumælandi staðarleiðsögumenn
- Aðgangseyrir í söfn, hof, garða og aðra menningarstaði
- Íslenskur fararstjóri
Ekki innifalið:
- Millilandaflug
- Drykkir
- Matur sem ekki er í ferðalýsingu
Bókun:
Hægt að bóka ferðina hér á síðunni með því að smella á “Bóka ferð”. Einnig er hægt að senda tölvupóst á fjallafelagid@fjallafelagid.is.
Einstaklingsherbergi:
Hægt er að óska eftir einstaklingsherbergi gegn aukagjaldi.
Skilmálar:
Mikilvægt er að þátttakendur kynni sér skilmála Fjallafélagsins sem hægt er að hálgast hér: https://fjallafelagid.is/skilmalar/
DAGSKRÁ
Dagur 1 – sunnudagur 20. september – Tókýó
Lent Tókýó um hádegisbil. Akstur frá flugvelli að hóteli í Shibuya hverfi þar sem við gistum næstu tvær nætur. Þetta er rólegur dagur eftir langt ferðalag og hægt að skoða nágrenni hótelsins semer í líflegu hverfi. Um kvöldið förum við á veitingastað og hefjum ferðalagið um japanskar matarhefðir.
Innifalið: Akstur frá flugvelli að hóteli, gisting á hóteli, kvöldverður.
Ekki innifalið: Hádegisverður.
Dagur 2 – mánudagur 21. september – Skoðunarferð um Tókýó
Við leggjum af stað í skoðunarferð um Tókýó þar sem við könnum fjölbreytt og lífleg hverfi borgarinnar. Við byrjum á heimsókn á hin heimsfrægu Shibuya-gatnamót þar sem iðandi straumur gangandi vegfarenda fangar einstaka stemningu borgarinnar. Göngum í gegnum litríku Harajuku, sem er þekkt fyrir nútímalegan tískustíl og Omotesando-breiðgötuna með sínum
hátískubúðum og nútímaarkitektúr. Ferðin endar í Shinjuku, þar sem við njótum kyrrlátrar stundar í Shinjuku Gyoen, einum stærsta og vinsælasta almenningsgarði Tókýó. Þar ríkir róandi andrúmsloft og er friðsælt skjól í miðri iðandi stórborginni.
Innifalið: Gisting á hóteli , morgunverður, hádegisnesti, leiðsögn um Tókýó, þ.m.t. aðgangseyrir að þeim minjum sem við heimsækjum, lest.
Ekki innifalið: Kvöldverður
Dagur 3 – þriðjudagur 22. september – Hakone
Eftir morgunverð er farið í rútu á hótel í Hakone þar sem við gistum í þrjár nætur. Hakone er þekkt fyrir óviðjafnanlega náttúrufegurð og náttúrulegar heitar laugar, onsen, sem eru órjúfanlegur hluti af japanskri baðmenningu. Þessar laugar tengjast bæði slökun og heilsu og eru rótgróin hefð sem sameinar líkamlega vellíðan, andlega hreinsun og djúpa tengingu við náttúruna. Við tökum rólegan dag og undirbúum okkur fyrir gönguna á Mt. Fuji.
Innifalið: Gisting á hóteli, morgunverður.
Ekki innifalið: Hádegis og kvöldverður.
Dagur 4 – miðvikudagur 23 september – Mt. Fuji / Hakone
Við leggjum snemma af stað frá hótelinu og förum með rútu í um 2400m hæð á Mt.Fuji. Þar munum við hefja gönguna um kl 6 að morgni eftir Fujinomiya leiðinni. Mt. Fuji er hæsta fjall Japan 3776m á hæð. Það er á heimsminjaskrá UNESCO og er ganga á fjallið bæði áskorun og mikil upplifun. Við munum njóta sólarupprásar í göngubyrjun. Hækkunin eru rúmir 1600m., förum við því rólega og njótum göngunnar með stoppum við skála á leiðinni. Ef aðstæður leyfa á tindinum, þá er í boði að ganga hring um hinn stórbrotna gíg Fujinomiya, sem er vitnisburður um eldvirkni fjallsins, sem er eldfjall í dval. Að því loknu hefst niðurganga og munum við enda daginn á sama hóteli í Hakone, þar sem við getum slappað af í heitri laug.
Göngutími: ~ 10-12 klst. Hæðarhækkun 1650m.
Innifalið: Léttur morgunverður fyrir göngu, leiðsögn í göngu, akstur á hótel, hótel í Hakone , kvöldverður.
Ekki innifalið: Nesti í göngu, hádegisverður
Dagur 5 – fimmtudagur 24. september – Hakone
Við munum njóta þess að eiga hvíldardag í Hakone eftir gönguna á Mt. Fuji og njóta náttúrunnar þar. Hægt er meðal annars að ganga niður í Togendai station (2,2 km) og taka kláfinn yfir í Souzan Station til að fara í Open Air Museum. Gott útsýni er úr kláfnum og fer hann yfir Owakudani eldfjalladalinn. Svæðið er þakið gufum, brennisteinslykt og bubblandi hverum. Ferðamenn kalla dalinn gjarnan „helvítisdalurinn“ vegna útlitsins. Hægt er að skoða svæðið og kaupa svört hverasoðin egg sem kallast Kuro-tamago. Þá er hægt að spila golf í Hakone og sigla á vatninu. Að degi loknum er upplagt að slaka á í Onsen lauginni og endurnærast. Þessi dagur verður til vara ef aðstæður á Mt. Fuji eru ekki hagstæðar á aðaldegi.
Innifalið: Gisting á hóteli, morgunverður
Ekki innifalið: Hádegisverður og kvöldverður.
Dagur 6 – föstudagur 25. september – Hakone – Kyoto
Eftir morgunverð verður haldið til Kyoto með háhraðalestinni, Shinkansen og tekur ferðalagið um 3 klst. Farið verður á einn þekktasta og líflegasta matarmarkað borgarinnar, Nishiki Market, oft kallað “eldhús Kyoto”. Þar upplifum við fjölbreytileika japanskrar matarhefðar og andrúmslofts þar sem ferskt hráefni og staðbundnar kræsingar eru í aðalhlutverki. Þá verður gengið um Gion hverfið (Geisha) sem er eitt frægasta og sögufrægasta geishu-hverfi Japans. Það er staðsett í hjarta Kyoto og er þekkt fyrir sína einstöku japönsku menningu, hefðir og fallega götumynd.
Innifalið: Lest til Kyoto, gisting á Ryokan hóteli í Kyoto, morgun- og kvöldverður.
Ekki innifalið: Hádegisverður
Dagur 7 – laugardagur 26. september – Bakgarður Kyoto
Við förum snemma af stað til að vera á undan fjölda ferðamanna sem eru öllu jöfnu í Kyoto. Ganga dagsins er auðveld en mjög falleg og gengið er upp með Kiyotaki-ánni, neðst í dal. Við fylgjum leið sem liggur upp eftir hlíðinni með skógi og sveitastígum að Jingo-ji hofinu. Það er gamalt Shingon-búddahof sem er bæði þekkt fyrir náttúru, gönguleiðir og fallegt landslag í djúpum dölum. Eftir göngu verður haldið í te athöfn, en það er hefð sem þróaðist á 15. öld og er iðkuð enn í dag.
Gönguvegalengd: ~ 8 km, 2-3 klst.
Innifalið: Gisting á Ryokan hóteli í Kyoto, morgun- og hádegisverður, akstur að upphafsstað göngu og tilbaka, leiðsögn í göngu, te-athöfn.
Ekki innifalið: Nesti í göngu, kvöldverður.
Dagur 8 – sunnudagur 27. september – Kyoto – Onamichi – Ömishima Island
Frá Kyoto tökum við lest til Onomichi, 3 klst., og þar hefst hjólaleiðin (Shimanami Kaido) sem nær yfir sjö eyjar og endar á eyjunni Shikoku. Leiðin er á sérmerktum hjólastígum, fremur flöt, en þó með hækkunum yfir brýrnar. Gist verður um miðja leið í eyjunni Ömishima Island.
Hjólavegalengd: ~ 35 km.
Innifalið: Lest til Onomichi, gisting, morgun- og kvöldverður, hjólaleiga, skutl á farangri í gistingu. Hægt að leigja rafmagnshjól, kostar aukalega 9.000 kr
Ekki innifalið: Hádegisverður, nesti (hressing) á hjólaleið.
Dagur 9 – mánudagur 28. september – Shikoku – Hiroshima
Eftir morgunverð verður förinni yfir eyjarnar haldið áfram og Shimanami Kaido leiðin kláruð til Imabari. Þaðan verður lestin tekin til Hiroshima sem við munum gista næstu 3 nætur.
Hjólavegalend: ~ 35km.
Innifalið: Lest til Hiroshima,akstur á hótel, gisting, morgunverður, hjólaleiga, skutl á farangri og kvöldverður.
Ekki innifalið: Hádegisverður, nesti (hressing) á hjólaleið
Dagur 10 – þriðjudagur 29. september – Hiroshima
Hiroshima er heimsþekkt fyrir sögulega atburði seinni heimsstyrjaldar, þegar fyrsta kjarnorkusprengjan var sprengd þar árið 1945. Þrátt fyrir þessa hörmulegu atburði hefur borgin endurbyggt sig sem tákn um frið og von. Við munum heimsækja Hiroshima Friðargarðinn (Peace Memorial Park) og Friðarsafnið (Peace Memorial Museum) og heiðra minningu fórnarlambanna. Gönguferðin leiðir okkur einnig að Atomic Bomb Dome, sem er á heimsminjaskrá UNESCO og stendur sem áminning um söguna og vonina um betri framtíð.
Innifalið: Gisting á hóteli , kvöldverður, leiðsögn um Hiroshima og aðgangur í Friðarsafnið.
Ekki innifalið: Hádegisverður.
Dagur 11 – miðvikudagur 30. september – Miyajima Island and Mt. Misen
Við höldum af stað með ferju yfir til eyjarinnar Miyajima, sem er þekkt fyrir hinn “fljótandi” Itsukushima-helgidóm og er á skrá UNESCO. Eyjan er friðsæll áfangastaður með fallegu landslagi og menningararfi. Gengið verður á fjallið Mt Misen, sem er hæsta fjall eyjarinnar í gegnum skóga, ef við erum heppin sjáum við m.a. villt hjartardýr á leiðinni og á toppnum eru sögulegir búddískir helgistaðir. Útsýnið er stórkostlegt yfir Setó-innhafið og eyjar.
Göngutími: ~ 3 klst
Innifalið: Ferja fram og til baka til Miyajima eyjar, leiðsögn og ganga á Mt Misen, gisting, morgunverður.
Ekki innifalið: Nesti í göngu, hádegis- og kvöldverður.
Dagur 12 – fimmtudagur 1. október – Hiroshima – Tókýó
Eftir morgunverð og reynslunni ríkari af ævintýrum og upplifunum kveðjum við Hiroshima, lokum hringnum og höldum aftur til stað til Tókýó með háhraðalestinni (Shinkansen). Kveðjukvöldverður.
Lestarferð: ~ 5 klst.
Innifalið: Gisting á hóteli í Tókýó, morgun- og kvöldverður.
Ekki innifalið: Hádegisverður.
Dagur 13 – föstudagur 2. október – Tókýó – brottför
Lokadagur í Tókýó fyrir brottför um kvöldið. Frjáls dagur fram að brottför.
Innifalið: Morgunverður, akstur á flugvöll.
Ekki innifalið: Hádegis- og kvöldverður.
















