Inkastígurinn til Machu Picchu í Perú 24.4.2026

24.4.2026

Machu Picchu er eitt af sjö undrum veraldar
Machu Picchu er eitt af sjö undrum veraldar

Inkastígurinn til Machu Picchu er ein stórbrotnasta gönguleið heims og liggur um merkar fornminjar frá stórveldi Inkanna. Týnda borgin Machu Picchu er eitt af verkfræðilegu undrum hins forna heims og var mönnum ráðgáta þegar hún fannst árið 1911. Fram að því hafði hún verið falin um margar aldir í frumskóginum. Gangan sjálf tekur fjóra daga og endar með því að við göngum í gegnum sólarhliðið og lítum Machu Picchu augum. Þetta er upplifun sem enginn gleymir. Við höfum skipulagt sérstakan dag eftir gönguna sem helgaður er skoðunarferð um rústirnar og göngu á Huayna Picchu fjallið, sem er fallega fjallið á öllum myndum af Machu Picchu borginni. Útsýnið er einstakt og mikil upplifun að standa á toppnum.

Perú hefur að geyma gríðarlegar andstæður og fáum við að kynnast þeim. Við heimsækjum Regnbogafjallið og skoðum Líma höfuðborg Perú.

Fararstjóri:

Haraldur Örn Ólafsson

Fjöldi þátttakenda:

Lágmark 8 og hámark 16

Undirbúningur:

Þessi ferð er krefjandi þótt gangan sjálf sé ekki tæknilega erfið. Því er mikilvægt að þátttakendur undirbúi sig vel og æfi reglulega fram að brottför.

Búnaður:

Búnaðarlisti verður sendur til hópsins. Farangur verður fluttur milli gististaða af burðarmönnum en við berum léttan bakpoka með því sem þarf til dagsins.

Tryggingar:

Athugið að engar tryggingar eru innifaldar í verði ferðarinnar og mikilvægt er að þátttakendur séu að fullu tryggðir. Á Inkastígnum er farið hæst í 4.215m hæð og á Regnbogafjalli er farið yfir 5.000m þannig að almennar ferðatryggingar duga ekki. Tryggingin þarf m.a. að ná yfir kostnað við leit og björgun upp í 5.000 metra. Þátttakendur sjá sjálfir um að kaupa forfalla- og ferðatryggingu. Fjallafélagið mælir með að þátttakendur kaupi sérstaka forfallatryggingu um leið og ferðin er bókuð. Mikilvægt er að ganga úr skugga um að tryggingin nái yfir kostnað við ferðina í heild sinni (ekki aðeins yfir fargjald og gistikostnað).

Innifalið:
  • Akstur til og frá flugvelli í Cusco
  • Hótel 4* í Cusco í fimm nætur m/morgunverði
  • Hótel 4* í Sacred Valley í tvær nætur m/morgunverði
  • Hótel 4* í Aguas Calientes í eina nótt m/morgunverði
  • Hótel 4* í Lima í eina nótt m/morgunverði
  • Gisting í 3 nætur í tveggja manna tjöldum
  • Skoðunarferð um Cusco og nágrenni
  • Skoðunarferð um Lima
  • Akstur til og frá flugvelli í Lima
  • Dagsferð í Sacred valley (Helgan dal Inkanna)
  • Allur matur í gönguferðinni um Inkastíginn (3 máltíðir á dag)
  • Matartjöld, borð og stólar. Eldhústjald og salernistjald
  • Enskumælandi innlendir leiðsögumenn
  • Matreiðslumaður og eldunartæki
  • Burðarmenn
  • Svefnpoki, dýna og göngustafir á göngunni um Inkastíginn
  • Aðgangseyrir í Machu Picchu
  • Aðgangseyrir á Huayna Picchu fjallið
  • Léttar jógateygjur á göngunni um Inkastíginn
  • Aðgangseyrir að öllum minjum og söfnum
  • Lestar-og rútuferð frá Machu Picchu til Cusco
  • Via Ferrata og Zip line
  • Æfingaferð í Fálkaklett; Via Ferrata leið í Esju með leiðsögumanni
  • Íslenskur og erlendir leiðsögumenn
  • Undirbúningsfundur
Ekki innifalið:
  • Flug – Fjallafélagið sendir á farþega flug sem við mælum með
  • Drykkir
  • Matur sem ekki er í ferðalýsingu hér að ofan
  • Þjórfé til innlendra leiðsögu- og burðarmanna

Regnbogafjallið þar sem farið er yfir 5.000 metra hæð

Bókun:

Hægt að bóka ferðina hér á síðunni með því að smella á “Bóka ferð”. Einnig er hægt að senda tölvupóst á fjallafelagid@fjallafelagid.is. Bókun er ávallt með fyrirvara um framboð af leyfum á Inkastígnum. Samhliða skráningu þarf að senda ljósmynd af vegabréfi á netfangið bjarnthora@fjallafelagid.is. Leyfin fyrir Inkastígnum eru gefin út um miðjan október/byrjun nóvember því er ekki ráðlagt að panta/bóka flug fyrr en komin er staðfesting á leyfunum.

Einstaklingsherbergi:

Aukagjald fyrir einstaklings herbergi/tjald: ISK 69.000.

Skilmálar:

Mikilvægt er að þátttakendur kynni sér skilmála Fjallafélagsins sem hægt er að hálgast hér: https://fjallafelagid.is/skilmalar/

*Takmarkaður fjöldi leyfa er gefinn út fyrir hvern dag fyrir Inkastíginn og mikil eftirspurn er eftir þeim. Því er mikilvægt að bóka ferðina með góðum fyrirvara. Leyfin eru gefin út á nafn og fæst gjaldið ekki endurgreitt og ekki er hægt að nafnabreyta. Fjallafélagið mun hins vegar ekki kaupa leyfin fyrir hópinn fyrr en lágmarks þátttöku er náð. Leyfum fyrir gönguna er úthlutað í október/nóvember ár hvert.

*Náist ekki lágmarks þátttaka verður ferðin felld niður og fæst þá full endurgreiðsla (þmt. staðfestingargjald). Þrátt fyrir að lágmarks þátttöku sé náð er bókun ávallt með fyrirvara um framboð á leyfum. Ferðin kann því að falla niður þrátt fyrir að lágmarks þátttöku sé náð sökum skorts á leyfum.

*Mikilvægt er að Fjallafélaginu séu veittar réttar upplýsingar, eins og þær koma fram í vegabréfi þátttakenda, um fullt nafn, vegabréfsnúmer, fæðingardag og þjóðerni. Ef upplýsingar í vegabréfi eru ekki í samræmi við leyfi fær viðkomandi þátttakandi ekki að fara á Inkastígnum. Hafa þarf vegabréfið meðferðis alla ferðina. Athugið að vegabréf þurfa að gilda í 6 mánuði eftir lok ferðar.

TÍMALENGD

13 dagar

TEGUND FERÐAR

Utanlandsferð

INNIFALIÐ

Sjá lýsingu

ERFIÐLEIKASTIG

VERÐ

539.000 kr

Availability: In stock

Product price
Additional options total:
Samtals:

DAGSKRÁ

Dagur 1, föstudagur 24. apríl. Komið til Cusco 

Ferðin hefst við komuna til Cusco og er miðað við að þátttakendur séu komnir um miðjan dag til borgarinnar.

Við höldum á hótelið okkar sem við gistum á næstu tvær nætur og hvílum okkur eftir langt ferðalag.

Cusco sem nefnd er höfuðborg Inkanna, var miðpunktur í stórveldi þeirra. Við erum komin í 3.400m hæð og er þetta því kjörinn staður til að aðlagast þunnu lofti fyrir gönguna. Eftir innritun á hótelið er frjáls tími sem kjörið er að nýta til að skoða fornar götur miðborgarinnar og framandi mannlíf. Annars mælum við með að taka því rólega og drekka mikið af vatni til að gefa líkamanum tækifæri til að aðlagast þunnu lofti í svo mikilli hæð.

Innifalið: Rúta frá flugvelli í Cusco að hóteli  m.v. uppgefið flug fyrir hópinn. Gisting á 4* hóteli í Cusco í tveggja manna herbergjum.

Ekki innifalið: Hádegis- og kvöldverður. 

Dagur 2, laugardagur 25. apríl. Skoðunarferð um Cusco 

Við höldum í skoðunarferð um borgina og fræðumst um sögu hennar og skoðum merkar minjar. Byrjum á að heimsækja áhugaverða staði í miðborginni, Plaza de Armas torgið, kirkjuna, götur með meistaralegri hönnun og steinhleðslum Inkanna svo sem Loreto og sólhofið Koricancha. Höldum síðan að virkinu Sacsayhuaman’s sem er ein af merkustu byggingum Inkanna og hefur geyma gríðarstóra steina sem þurfti að flytja 18 km. Næst höldum við til hofsins Quenqo, Tambomachay rústanna og virkisins Puca Pucara sem eru rétt utan við Cusco. Að skoðunarferð lokinni höldum við aftur á hótelið. 

Innifalið: Gisting á 4 * hóteli í Cusco í tveggja manna herbergjum. Skoðunarferð um Cusco þ.m.t. aðgangseyrir að þeim minjum sem við heimsækjum, akstur, leiðsögn, morgunverður á hóteli. 

Ekki innifalið: Hádegis- og kvöldverður. 

Dagur 3, sunnudagur 26. apríl. Skoðunarferð um helgan dal Inkanna. Sacred Valley 

Við förum af hótelinu okkar í Cusco dag, höldum til hins helga dals Inkanna (Sacred Valley) og skoðum hinar ótrúlegu fornminjar í Pisac. Þar eru heillegustu minjar um veldi Inkanna með merkum stöllum þar sem landbúnaður var stundaður. Einnig eru þar grafhýsi, hallir og aðrar stórar byggingar. 

Innifalið: Gisting á 4* hóteli í Sacred Valley  í tveggja manna herbergjum. Skoðunarferð um helgan dal Inkanna þ.m.t. aðgangseyrir að þeim minjum sem við heimsækjum, akstur, leiðsögn, hádegisverður og kvöldverður.

Dagur 4, mánudagur 27. apríl.  Via Ferrata, Zip line, Maras og Moray  

Eftir morgunverð förum við í spennandi ævintýri upp 300 metra Via Ferrata leið með einstöku útsýni yfir helgan dal Inkanna. Boðið verður upp á æfingarferð í Fálkaklett fyrir ferðina til að æfa klifurtæknina. Efst eru þekkt glerhýsi þar sem ofurhugar gista. Við ætlum hins vegar ekki að gista heldur renna okkur niður á zipp-línu. Einnig er í boði að fara í áhugaverða göngu í staðinn fyrir Via ferrata og zipp-línu. Eftir hádegi höldum við til Maras, þar sem við skoðum saltið sem þar hefur verið unnið úr jörðinni í þúsundir ára. Maras er þekkt fyrir sérstakar salttjarnir. Eftir Maras höldum við áfram til Moray, sem er eitt af mikilvægum fornminjum Inka. Moray er ein af þeim einstöku stöðum þar sem Inkar þróuðu sértæka landbúnaðartækni.

Innifalið: Gisting á 4* hóteli í Sacred Valley  í tveggja manna herbergjum, Zip line, Via Ferrata, skoðunarferðir, akstur, leiðsögn, hádegisverður og kvöldverður

Dagur 5, þriðjudagur 28. apríl. Gangan hefst – Wayllabamba 

Í dag hefst gangan eftir sjálfum Inkastígnum til Machu Picchu en hann var byggður af Inkum á 15. öld um leið og borgin sjálf. Við ökum í um 45 mínútur til Piscacucho (einnig þekkt sem Km82) þar sem gangan hefst. Hér hittum við innlenda leiðsögumenn og burðarmenn sem fylgja okkur í göngunni. Við göngum meðfram Urubamba ánni og fyrir ofan sjáum við snæviþakta tinda Andes fjalla. Í lok dags komum við í fyrsta tjaldstað sem nefnist Wayllabamba. 

Gönguvegalengd er um 11 km og tekur gangan í heild um 6‐7 tíma

Innifalið: Akstur að upphafsstað göngu, gisting í tveggja manna tjöldum, allar máltíðir.

Dagur 6, miðvikudagur 29. apríl. Gengið yfir Dead Woman’s Pass í 4.215m hæð 

Þetta er lengsti og erfiðasti dagur göngunnar. Við göngum upp langa brekku í gegnum regnskóg að sléttunni Llulluchapampa. Síðan förum við í mestu hæð á allri göngunni þegar við förum í gegnum skarðið Warmihuañusca sem einnig er nefnt Dead Woman’s Pass í 4.215m hæð. Höldum þaðan niður í fallegan dal við Pacamayo ánna og tjöldum þar í 3.600 metra hæð. 

Gönguvegalengd er um 10km og tekur gangan í heildina um 6‐7 tíma.

Innifalið: Gisting í tveggja manna tjöldum, allar máltíðir 

Dagur 7, fimmtudagur 30. apríl. Gengið yfir Runqu Raccay skarðið í 3.930m 

Dagurinn byrjar á hækkun að rústunum Runquracay og áfram yfir Runquracay skarðið í 3.930m hæð. Við förum framhjá Sayacmarca rústunum og tekur þá við skógur og síðan göng sem gerð voru af Inkunum. Í lok dags tjöldum við á fallegum hrygg fyrir ofan Phuyupatamarca rústirnar 3.680m og njótum sólsetursins og einstakrar náttúrufegurðar Andesfjalla.

Gönguvegalengd er um 12km og tekur gangan í heildina um 5-6 tíma.

Innifalið: Gisting í tveggja manna tjöldum, allar máltíðir 

Dagur 8, föstudagur 1. maí. Phuyupatamarca – Machu Picchu – Aguas Calientes 

Nú taka við Inka þrepin frægu sem er tveggja kílómetra stigi sem leiðir okkur niður á við til móts við óviðjafnanlegt útsýni til hárra fjalla og djúpra dala. Eftir að við höfum skoðað rústir Winay Wayna höldum við áfram göngu og komum að Intipunku. Þar njótum við fullrar sýnar yfir Machu Picchu. Komum síðdegis til Aguas Calientes 

Gönguvegalengd er um 9 km og tekur gangan í heildina um 6‐7 tíma.

Innifalið: Gisting á 3-4* hóteli í tveggja manna herbergjum, allar máltíðir 

Dagur 9, laugardagur 2. maí. Machu Picchu – Cusco 

Leggjum snemma af stað frá hótelinu og förum með rútu ca. 30 mín. akstur að hinni fornu borg Machu Picchu. Við skoðum þessar einstöku fornminjar og drekkum í okkur söguna. Göngum einnig á Huayna Picchu fjallið,  sem er fallega fjallið sem sést á öllum myndum af Machu Picchu.  Að göngu lokinni förum við aftur í rútu til Aguas Calientes og síðan járnbrautarlest til Ollantaytambo, þaðan með rútu til Cusco.  

Innifalið: Skoðunarferð um Machu Picchu, ganga/leyfi á Huayna Picchu fjallið, leiðsögn, aðgangseyrir, akstur, lestarferð, gisting á 4* hóteli í Cusco í tveggja manna herbergjum, morgunverður á hóteli og hádegisverður (pizza). 

Ekki innifalið: Kvöldverður. 

Dagur 10, sunnudagur 3. maí. Regnbogafjall

Við vöknum snemma og förum í skoðunarferð að hinu fræga Regnbogafjalli, Rainbow mountain. Fjallið dregur nafn sitt af einstakri litafegurð og hafa myndir af því farið eins og eldur í sinu um samfélagsmiðla. Við göngum upp að fjallinu og hægt er að virða það fyrir sér frá ólíkum útsýnisstöðum. Við eigum kost á að komast yfir 5.000m hæð sem er mikil reynsla og hugsanlega eru einhverjir að slá persónulegt hæðarmet. Eftir gönguna tekur við rútuferð aftur til Cusco þar sem við gistum á hóteli.

Innifalið: Skoðunarferð að Regnbogafjalli, leiðsögn, aðgangseyrir, akstur, gisting á 4* hóteli í Cusco í tveggja manna herbergjum, morgunverður á hóteli og hádegisverður í skoðunarferð. 

Ekki innifalið: Kvöldverður. 

Dagur 11, mánudagur 4. maí. Cusco

Eftir krefjandi daga á Inkastígnum eigum við skilið að slaka aðeins á og njóta alls þess sem Cusco hefur uppá að bjóða. Að okkar mati er Cusco ein áhugaverðasta borg í heimi og er því frjáls tími til að njóta alls þess sem hún hefur uppá að bjóða. Maturinn er einstakur og ekki hægt að fá leið á ceviche, ferskum ávöxtum og grænmeti, hægt er að fara í kakósmökkun og svo mætti lengi telja.

Innifalið: Gisting á 4* hóteli í Cusco í tveggja manna herbergjum

Ekki innifalið: Hádegisverður og kvöldverður. 

Dagur 12, þriðjudagur 5. maí. Skoðunarferð um Líma

Við kveðjum Cusco og fljúgum til Líma, höfuðborgar Perú. Förum í skoðunarferð um borgina og fræðumst um sögu hennar og merkar byggingar.

Innifalið: Morgunverður á hóteli, akstur á flugvöll, gisting á 4* hóteli í Lima í tveggja manna herbergjum, skoðunarferð um miðborg Lima.

Ekki innifalið: Flug, hádegisverður og kvöldverður.

Dagur 13, miðvikudagur 6. maí.

Frjáls tími til kvölds /fram að brottför út á flugvöll.

Innifalið: Morgunverður á hóteli, akstur á flugvöll. 

Ekki innifalið: Flug, hádegisverður og kvöldverður.