Fjallkyrjur II vor 2024

Janúar - maí

Fjallkyrjur II

Við erum stolt af því að bjóða uppá lokaða hópa fyrir konur sem stunda fjallgöngur og njóta útiveru í skemmtilegum hópi kvenna.

Vorverkefni Fjallkyrja hefjast í janúar og lýkur í maí en það er magnað að ganga inn í vorið og upplifa hversu hratt myrkrið hörfar. Fátt er betra fyrir andann en að finna vorið kveðja veturinn með bæði birtu og hlýju.

Fjallkyrjur II hentar þeim sem eru vanar fjallgöngum.

Farið verður í göngur annað hvert þriðjudagskvöld kl 18 og annan hvern laugardag kl 10. Við hittumst á upphafsstað göngu nema þegar við færum okkur aðeins út fyrir höfuðborgarsvæðið, þá sameinumst við í bíla.

Leiksvæði okkar er höfuðborgarsvæðið og næsta nágrenni. Hvalfjörður, Kjós, austur fyrir fjall og Reykjanes, allt eftir því hvað aðstæður bjóða upp á. Við lítum iðulega á veðurspána þegar við skipuleggjum hverja göngu fyrir sig og því breytum við oft röð fjallanna sem við göngum á. Það kemur einnig fyrir að við þurfum að fella út fjöll vegna aðstæðna en þá finnum við alltaf annan skemmtilegan stað til að skoða og njóta.

Kvöldgöngurnar í mesta myrkrinu snúast um að vera í núinu, fá hreyfingu og súrefni og upplifa hversu magnað það er fyrir bæði líkama og sál að ganga úti í skammdeginu og í raun auðveldara en margar halda enda eru þær göngur oft á tíðum í miklu uppáhaldi kvenna. Við nýtum helgarnar og birtuna til að kanna nýjar slóðir og njóta umhverfisins og útsýnis.

Aðalmálið er að fara út og hreyfa sig, njóta þess að vera í náttúrunni í góðum félagsskap.

Við sendum Ítarlegar upplýsingar í tölvupósti fyrir hverja göngu og einnig erum við með lokaðan Facebook hóp þar sem við miðlum upplýsingum og deildum myndum og fleiru.

*Fyrirhugað er að fara í lokaferð fyrstu helgina í júní en staðsetningin kemur síðar í ljós. Athugið að greitt er sér fyrir þá ferð.

Fjallkyrjur II í hnotskurn
  • Gengið aðra hverja viku á þriðjudögum og laugardögum

  • 15 göngur í heildina

  • Gott utanumhald og frábær félagsskapur

Fararstjórar

Kolbrún Björnsdóttir og Dögg Ármanssdóttir stýra verkefninu en með þeim verða Bára Mjöll Þórðardóttir, Eyrún Viktorsdóttir og Bjarnþóra Egilsdóttir.

Innifalið
  • Leiðsögn, fræðsla og utanumhald í 15 ferðum
  • Afsláttarkjör hjá samstarfsaðila – Fjallakofinn
  • Ítarlegan búnaðarlista má finna hér.
Öryggismál, tryggingar og skilmálar

Mikil áhersla er lögð á að tryggja hámarks öryggi í öllum ferðum Fjallafélagsins. Fjallgöngur fela ávallt í sér áhættu og eru þátttakendur á eigin ábyrgð í ferðunum. Þátttakendur eru ekki tryggðir í ferðum með Fjallafélaginu og eru hvattir til að snúa sér til tryggingafélags síns og kaupa þar viðeigandi tryggingar. Skilmálar Fjallafélagsins eru aðgengilegir hér. Þátttökugjald verður ekki endurgreitt eftir 20. janúar 2024.

TÍMALENGD

4 mánuðir

TEGUND FERÐAR

Gönguhópur

INNIFALIÐ

Sjá lýsingu

ERFIÐLEIKASTIG

VERÐ

69.000 kr.

Availability: In stock

Product price
Additional options total:
Samtals:

DAGSKRÁ

Dags Ganga Lengd Hækkun
20. Jan lau Selfjall og Sandfell 6 km 300m
30. Jan þri Helgafell Mosfellsdal 4 km 150m
3. Feb lau Grímannsfell 6 km 380m
13. Feb þri Reynisvatnsheiði 6 km 200m
17. Feb lau Fjallafélagshringur Esju 8 km 530m
27. Feb þri Skáldaleiðin 7 km 150m
2. mars lau Litli Meitill og Eldborg 7 km 360m
12. mars þri Reykjafell og Æsustaðafjall 6,5 km 350m
16. mars lau Gullbringa og Geithöfði 9 km 400m
Páskafrí
9. apríl þri Arnarhamar og Smáþúfur 6,8 570m
13. apríl lau Þyrill 8 km 450m
23. apríl þri Lambafell og Lambafellshnjúkur 5 km 380m
27. apríl lau Laugarvatnsfjall 9 km 530m
7. maí þri Drottning og Kóngur 5 km 290m
11. maí lau Geirmundartindur 7 km 630m
31. maí 2. júní helgi Fjallkyrju helgarferð *