Fjallgönguáskorun

Allt árið

FJALLGÖNGUÁSKORUN 2024

Fullbókað

Hægt ert að skrá sig á biðlista fyrir 2024

Fjallgönguáskorun er að hefja sitt 15. starfsár! Það var árið 2010 sem Fjallafélagið bauð fyrst upp á skipulagða fjallgöngudagskrá sem kallaðist 9.000 metra áskorun en hún endaði með einhverri fjölmennustu göngu sem sögur fara af á Hvannadalshnúk. Síðan eru göngurnar á þriðja hundrað!

Fjallgönguáskorun höfðar til þeirra sem vilja gera útivist og fjallgöngur að lífsstíl og halda sér þannig gangandi allt árið. Í hverjum mánuði eru tvær göngur, miðvikudagskvöld og laugardagur. Á tímabilinu maí til ágúst förum við stundum lengri ferðir um helgar og er þá gist eina eða fleiri nætur. Einstaklega samheldinn og góður hópur sem elskar útiveru er það sem einkennir Fjallagönguáskorunina.

FJALLGÖNGUÁSKORUNIN Í HNOTUSKURN
  • Gengið á 4 vikna fresti allt árið – á miðvikudögum og laugardögum
  • 22 fjallaferðir í heildina, þar af a.m.k. tvær helgarferðir
  • Göngur í hverjum mánuði frá janúar út desember
  • Gott utanumhald og frábær félagsskapur
INNIFALIÐ Í VERÐI
  • Leiðsögn, fræðsla og utanumhald í yfir 20 ferðum
  • Afsláttarkjör hjá samstarfsaðila – Fjallakofinn
EKKI INNIFALIÐ Í VERÐI
  • Gisting þegar þess þörf
  • Akstur / rúta
  • Persónulegur búnaður s.s. ísöxi og jöklabroddar þegar þess er þörf

Árgjaldið er 96.000 kr. Veittur er 40% afsláttur fyrir einstaklinga frá sama lögheimili (makagjald).

Ekki er hægt að kaupa stakar ferðir. Athugið að mörg stéttarfélög og fyrirtæki veita styrk gegn framvísun á kvittun frá Fjallafélaginu.

Nánari upplýsingar

Miðvikudagsgöngurnar munu hefjast kl. 18:00 og laugardagsgöngurnar kl. 10:00 nema annað sé tekið fram. Hópurinn hittist við upphafsstað göngunnar á miðvikudögum. Á laugardögum verður í boði að hittast á höfuðborgarsvæðinu á fyrirfram ákveðnum stað og sameinast í bíla. Ítarlegar upplýsingar eru sendar í tölvupósti fyrir hverja göngu. Ef veðurspá er óhagstæð er ferðum í sumum tilfellum frestað til næsta dags. Einnig kann í einhverjum tilvikum að vera nauðsynlegt að gera aðrar breytingar á dagskránni svo sem að ganga á annað fjall en upphaflega var áætlað eða að fella göngu niður vegna sérstaklega óhagstæðra skilyrða. Ítarlegar upplýsingar eru sendar í tölvupósti tímanlega fyrir göngu og þurfa því þátttakendur ávallt að fylgjast með tölvupósti sínum. Einnig er Facebook hópur notaður til samskipta.

Ítarlegan búnaðarlista má finna hér.

Fyrir hverja?

Fjallgönguáætlunin hentar öllum sem vilja stunda útivist og fjallgöngur allt árið. Sumar göngurnar eru nokkuð krefjandi en allir hraustir einstaklingar sem eru í ágætri þjálfun ráða vel við verkefnin. Engu að síður gerir Fjallafélagið þá lágmarkskröfu til getu þátttakenda að þeir geti haldið í við hópinn á rólegri göngu.

Öryggismál, tryggingar og skilmálar

Mikil áhersla er lögð á að tryggja hámarks öryggi í öllum ferðum Fjallafélagsins. Í ákveðnum göngum er skylda að vera með viðeigandi jöklabúnað (ísöxi/jöklabrodda/belti) og verður send út tilkynning um slíkt með fyrirvara. Mikilvægt er að þátttakendur taki vel eftir þessum atriðum og fari eftir leiðbeiningum fararstjóra. Fjallgöngur fela ávallt í sér áhættu og eru þátttakendur á eigin ábyrgð í ferðunum. Þátttakendur eru ekki tryggðir í ferðum með Fjallafélaginu og eru hvattir til að snúa sér til tryggingafélags síns og kaupa þar viðeigandi tryggingar. Skilmálar Fjallafélagsins eru aðgengilegir hér. Þátttökugjald verður ekki endurgreitt eftir 14. janúar.

TÍMALENGD

Ótímabundið

TEGUND FERÐAR

Gönguhópur

INNIFALIÐ

Sjá lýsingu

ERFIÐLEIKASTIG

VERÐ

96.000 kr.

Uppselt er í ferðina / hópinn. Þú getur skráð þig á biðlista og við látum þig vita um leið og hægt er að skrá sig að nýju.

DAGSKRÁ

Dagsetning Dagur Verkefni Hæð m. Hækkun m. Lengd km. Tími (klst)
13. janúar Laugardagur Hattur og Hetta 380 500 6 3
7. febrúar Miðvikudagur Mosfell 285 250 4 1
10. febrúar Laugardagur Djúpidalur og Bollafell 509 500 14 4
6. mars Miðvikudagur Reykjaborg og Hafrafell (Lali) við Hafravatn 286 285 6 2
9. mars Laugardagur Fjallahringurinn í Jósepsdal 655 790 12 5
3. apríl Miðvikudagur Sandfell í Kjós 395 350 5 2
6. apríl Laugardagur Reiðarbarmur 600 500 10 3
2. maí Fimmtudagur Stóri Meitill í Þrengslum 550 360 6 2
4. maí Laugardagur Lýsuhyrna, Rauðakúlur og Ánahyrna á Snæfellsnesi 897 1160 12 6
29. maí Miðvikudagur Rauðuhnúkar 440 220 5 2
1. júní Laugardagur Högnhöfði 1030 1030 14 6
29-30. júní Laugardagur Gönguhnjúkur frá Hofsósi Skagafirði. Drangey. Helgarferð 880 900 26 8
3-5. ágúst Verslunarmannahelgin Merkigil austan Mýrdalsjökuls og Sveinstindur við Langasjó. Helgarferð 1090 1000 20 8
21. ágúst Miðvikudagur Riddarinn og Gatið á Helgafelli Hafnarfirði 340 250 7 2
24. ágúst Laugardagur Hafursfell við Langjökul 1167 600 18 8
18. sept Miðvikudagur Sköflungur 440 220 6 2
21. sept Laugardagur Hestur, Tungufjall, Nónfjall og Sléttafjall í Hörðudal 791 860 14 5
16. okt Miðvikudagur Grímansfell 484 390 6 3
19. okt Laugardagur Miðdegishnjúkur 388 454 7 3
13.nóvember Miðvikudagur Rauðhóll Esju 560 590 8 3
16.nóvember Laugardagur Hringur á Vörðufelli 391 600 10 4
31. des. Gamlársdagur Úlfarsfell 295 260 4 2