Fjallgönguáskorun 2023

Allt árið

Fjallgönguáskorun er að hefja sitt 14. starfsár! Það var árið 2010 sem Fjallafélagið bauð fyrst upp á skipulagða fjallgöngudagskrá sem kallaðist 9.000 metra áskorun en hún endaði með einhverri fjölmennustu göngu sem sögur fara af á Hvannadalshnúk. Síðan eru göngurnar á þriðja hundrað!

Fjallgönguáskorun höfðar til þeirra sem vilja gera útivist og fjallgöngur að lífsstíl og halda sér þannig gangandi allt árið. Í hverjum mánuði eru tvær göngur, miðvikudagskvöld og laugardagur. Á tímabilinu maí til ágúst förum við stundum lengri ferðir um helgar og er þá gist eina eða fleiri nætur. Einstaklega samheldinn og góður hópur sem elskar útiveru er það sem einkennir Fjallagönguáskorunina.

FJALLGÖNGUÁSKORUNIN Í HNOTUSKURN
  • Gengið á 4 vikna fresti allt árið – á miðvikudögum og laugardögum
  • 22 fjallaferðir í heildina, þar af a.m.k. tvær helgarferðir
  • Göngur í hverjum mánuði frá janúar út desember
  • Gott utanumhald og frábær félagsskapur
Fararstjórar

Bræðurnir Haraldur Örn og Örvar Þór Ólafssynir leiða verkefnið ásamt öðrum reyndum fararstjórum Fjallafélagins.

INNIFALIÐ Í VERÐI
  • Leiðsögn, fræðsla og utanumhald í yfir 20 ferðum
  • Afsláttarkjör hjá samstarfsaðilum – Fjallakofinn og Garminbúðin
  • Sérstök kynningar- og afsláttarkvöld

Árgjaldið er 89.000 kr. Veittur er 40% afsláttur fyrir einstaklinga frá sama lögheimili (makagjald).

Ekki er hægt að kaupa stakar ferðir. Athugið að mörg stéttarfélög og fyrirtæki veita styrk gegn framvísun á kvittun frá Fjallafélaginu.

Nánari upplýsingar

Miðvikudagsgöngurnar munu hefjast kl. 18:00 og laugardagsgöngurnar kl. 10:00 nema annað sé tekið fram. Hópurinn hittist við upphafsstað göngunnar á miðvikudögum. Á laugardögum verður í boði að hittast á höfuðborgarsvæðinu á fyrirfram ákveðnum stað og sameinast í bíla. Ítarlegar upplýsingar eru sendar í tölvupósti fyrir hverja göngu. Ef veðurspá er óhagstæð er ferðum í sumum tilfellum frestað til næsta dags. Einnig kann í einhverjum tilvikum að vera nauðsynlegt að gera aðrar breytingar á dagskránni svo sem að ganga á annað fjall en upphaflega var áætlað eða að fella göngu niður vegna sérstaklega óhagstæðra skilyrða. Ítarlegar upplýsingar eru sendar í tölvupósti tímanlega fyrir göngu og þurfa því þátttakendur ávallt að fylgjast með tölvupósti sínum. Einnig er Facebook hópur notaður til samskipta.

Ítarlegan búnaðarlista má finna hér.

Fyrir hverja?

Fjallgönguáætlunin hentar öllum sem vilja stunda útivist og fjallgöngur allt árið. Sumar göngurnar eru nokkuð krefjandi en allir hraustir einstaklingar sem eru í ágætri þjálfun ráða vel við verkefnin. Engu að síður gerir Fjallafélagið þá lágmarkskröfu til getu þátttakenda að þeir geti haldið í við hópinn á rólegri göngu.

Öryggismál, tryggingar og skilmálar

Mikil áhersla er lögð á að tryggja hámarks öryggi í öllum ferðum Fjallafélagsins. Í ákveðnum göngum er skylda að vera með viðeigandi jöklabúnað (ísöxi/jöklabrodda/belti) og verður send út tilkynning um slíkt með fyrirvara. Mikilvægt er að þátttakendur taki vel eftir þessum atriðum og fari eftir leiðbeiningum fararstjóra. Fjallgöngur fela ávallt í sér áhættu og eru þátttakendur á eigin ábyrgð í ferðunum. Þátttakendur eru ekki tryggðir í ferðum með Fjallafélaginu og eru hvattir til að snúa sér til tryggingafélags síns og kaupa þar viðeigandi tryggingar. Skilmálar Fjallafélagsins eru aðgengilegir hér. Þátttökugjald verður ekki endurgreitt eftir 1. febrúar.

TÍMALENGD

12 mánuðir

TEGUND FERÐAR

Gönguhópur

INNIFALIÐ

Sjá lýsingu

ERFIÐLEIKASTIG

VERÐ

89.000 kr.

Product price
Additional options total:
Samtals:

DAGSKRÁ

Dagsetning Dagur Verkefni Hæð m. Hækkun m. Lengd km.
14. janúar Laugardagur Hraunsnefsöxl 395 385 7
8. febrúar Miðvikudagur Lokufjall og Melahnúkur 392 360 5
11. febrúar Laugardagur Búrfell í Þingvallasveit 782 1000 14
8. mars Miðvikudagur Smáþúfur ofan Blikdals 590 600 6
11. mars Laugardagur Hengill frá Sleggjubeinsskarði 803 820 14
12. apríl Miðvikudagur Keilir 378 270 6
15. apríl Laugardagur Vestursúla 1086 1050 15
3. maí Miðvikudagur Snóksfjall 573 550 6
6. maí Laugardagur Dagmálafjall undir Eyjafjallajökli 968 960 16
31. maí Miðvikudagur Brekkukambur í Hvalfirði 646 630 7
2.-4. júní Laugardagur 7 tindar Vestmannaeyja – helgarferð 270 1100 18
1. júlí Laugardagur Tindfjallajökull þveraður suður-norður 1436 650 16
4. – 7. ágúst Verslunarm.helgin Herðubreið – helgarferð 1685 980 7
23. ágúst Miðvikudagur Vífilsfell 655 415 7
26. ágúst Laugardagur Hafursfell á Snæfellsnesi 760 805 9
20. sept Miðvikudagur Geitafell 630 610 7
23. sept Laugardagur Búrfell í Þjórsárdal 673 670 10
18. okt Miðvikudagur Lyklafell 281 240 6
21. okt Laugardagur Grafartindur í Dölum 870 880 10
15. nóv Miðvikudagur Stardalshnúkar og Tröllafoss 320 386 7
18. nóv Laugardagur Skarðsmýrarfjall og Innstidalur hringur 610 360 10
31. des Gamlársdagur Úlfarsfell 295 280 5