Fjallahlaup í Dólómítunum 30.8.2026 Kvennaferð – lokagreiðsla

30.08.2026

Upplifun í Dólómítunum 30. ágúst til 6. september 2026

Dólómítarnir á Ítalíu eru einstakt náttúrusvæði sem hefur verið skráð á heimsminjaskrá UNESCO. Svæðið er þekkt fyrir stórbrotin kalksteinsfjöll, óviðjafnanlega náttúrufegurð og áhrifamikið landslag. Í hjarta svæðisins er Cortina – sjarmerandi bær þar sem ítölsk menning, tískuvitund og fjallasýn mætast, þar ætlum við að gista. Cortina hefur verið vettvangur Vetrarólympíuleika og er vinsæll áfangastaður útivistarfólks, klifrara og skíðaiðkenda.

HVAÐ ÆTLUM VIÐ AÐ GERA?
Flogið frá Keflavík til Feneyja á Ítalíu.
Rúta frá Feneyjum til Cortina, ca 3 klst.
Gisting á hóteli í Cortina.
5 hlaupadagar,
18–26 km á dag, (900–1200 m. hækkun pr. dag)
2 frjálsir dagar í Feneyjum.

Innifalið:
  • Undirbúningsfundur
  • Rútuferðir, frá flugvellinum á Feneyjum og til baka
  • Rútuferðir eins og tilgreint er í lýsingu
  • Gisting í 7 nætur eins og tilgreint er í lýsingu í tveggja manna herbergjum
  • 7 morgunverðir
  • Íslensk fararstjórn

Hægt að framlengja ferðina og eru þátttakendur þá á eigin vegum.
Flug er ekki innifalið í ferðinni og sér hver og einn þátttakandi um að bóka flug til Feneyja og til baka. Icelandair er með beint flug til/frá Feneyjum þessa daga.

Fararstjórar:

Rakel Mánadóttir og Ása Björg Tryggvadóttir.

Hámarksfjöldi:

18

Undirbúningur:

Þessi ferð er krefjandi og aðeins fyrir þá sem hafa góðan grunn í hlaupum. Einnig er mikilvægt að þátttakendur þjálfi sig vel fyrir ferðina með reglulegum hlaupum og fjallgöngum.

Tryggingar:

Þátttakendur sjá sjálfir um að kaupa forfalla- og ferðatryggingu. Fjallafélagið mælir með að þátttakendur kaupi sérstaka forfallatryggingu um leið og ferðin er bókuð. Mikilvægt er að ganga úr skugga um að tryggingin nái yfir kostnaðar við ferðina í heild sinni (ekki aðeins yfir fargjald og gistikostnað).

Bókun:

Hægt er að bóka ferðina með því að smella á “Bóka ferð” og greiða staðfestingargjald. Einnig er hægt að senda tölvupóst á fjallafelagid@fjallafelagid.is. Staðfestingargjald er kr. 55.000 (15.000 kr í desember og 40.000 kr í janúar)

Skilmálar:

Mikilvægt er að þátttakendur kynni sér skilmála Fjallafélagsins sem hægt er að hálgast hér: https://fjallafelagid.is/skilmalar/

 

TÍMALENGD

8 dagar

TEGUND FERÐAR

Utanlandsferð

INNIFALIÐ

Sjá lýsingu

ERFIÐLEIKASTIG

VERÐ

376.000 kr.

Availability: In stock

Product price
Additional options total:
Samtals:

DAGSKRÁ

Ævintýrið

Dæmi um einn ævintýradag.
Hlaupið frá Cortina meðfram Croda da Lago, þangað sem leiðinni er heitið að Passo
Giau, einu fallegasta og frægasta fjallaskarði Dólómítanna.
Hlaupum meðfram klettabeltum og horfum uppundir Rifugio Nuvolau, sem stendur á
brún klettabeltisins– einn elsti fjallaskáli svæðisins, sem við svo skoðum betur þegar
upp er komið. Útsýnis og kaffipása í Rifugio Averau, áður en við klifrum örlitið til að
komast og líta Nuvolau augum.

Við skoðum Cinque Torri – turnana fimm, eitt þekktasta kennileiti Dólómítanna.
Þar sjáum við áhugaverðar herminjar frá WWI – skotgrafir, sjúkraskýli og varnir innan
um klettana. Svæðið býður upp á víðáttumikið útsýni og klettarnir þóttu náttúrulegt
skjól fyrir árásum á fyrri heimstyrjöldinni.

Annan dag förum við að hinu fræga Lagazuoi þar sem útsýnið er sturlað í  um 2.900
m hæð. Stoppum í Rifugio Lagazuoi (2.752 m) sem talinn er með besta útsýni í
Dólómítunum. Hægt að slaka aðeins á í Lagazuoi, taka hlaup ofar í fjallið eða gefa
sér góðan tíma að skoða inn í hluta af herminjagöngum sem liggja upp með öllu
fjallinu. Því næst er haldið niður í stórkostlegasta niðurhlaup sem hægt er að fá –
útsýnið er sturlað við Rio Travenanzes-ána. Ekkert símasamband og engir skálar eru
stóran hluta leiðarinnar (ca. 15-18 km). Stoppum í skála við enda þjóðgarðsins með
möguleika á að pikka okkur upp hér. Fyrir þá hörðustu er hlaupi haldið alla leið niður
í Cortina.

Einn daginn ferðumst við með bílum að Tre Cime di Lavaredo, einu þekktasta og
táknræna kennileiti Dolomítanna. Tre Cime eru þrír risastórir tindar, þar af er hæsti
um 3.000 metrar á hæð. Stórkostlegt umhverfi og skemmtilega hlaupalegir stígar.
Daginn sem við forum að skoða Lago Sorapis er farið eldsnemma af stað til að nýta
daginn sem best. Lago Sorapis er túrkísblátt vatn, umlukið einstökum „mjólkur-
klettum“. Það þykir eitt af fallegustu stöðum Dolomítana. Gangan að vatninu er ekki
löng, en frekar krefjandi, og mjög grýtt á köflum, stór hluti leiðarinnar er ekki
hlaupanlegur svo við göngum meira þennan dag.
Eftir gönguna að Lago Sorapis tékkum við út af hótelinu og förum með rútu til
Feneyja.

Lokadagar í Feneyjum

Eftir fjalladagana er ferðinni heitið til Feneyja þar sem þátttakendur fá frjálsan dag til að
njóta borgarinnar – gondólaferðir, listasöfn, cappuccino á torginu og litríkar götur. Ferðin
endar með sameiginlegum kvöldverði fyrir þær sem vilja (ekki innifalið) og heimferð daginn
eftir.