Fjallabandalagið

Allt árið

Fjallabandalagið er að hefja sitt annað starfsár. Fjallabandalagið höfðar til þeirra sem vilja gera útivist og fjallgöngur að lífsstíl og halda sér þannig gangandi allt árið. Í hverjum mánuði eru tvær göngur, miðvikudagskvöld og laugardagur. Á tímabilinu maí til ágúst förum við stundum lengri ferðir um helgar og er þá gist eina eða fleiri nætur.

Fjallabandalagið í hnotskurn
  • Gengið á 4 vikna fresti allt árið – á miðvikudögum og laugardögum
  • 22 fjallaferðir í heildina, þar af a.m.k. ein helgarferð
  • Göngur í hverjum mánuði frá janúar til desember
  • Gott utanumhald og frábær félagsskapur
Fararstjórar

Haraldur Örn Ólafsson og Guðrún Ragna Hreinsdóttir.

Árgjald

Árgjaldið er 89.000 kr. Veittur er 25% afsláttur fyrir einstaklinga frá sama lögheimili (makagjald).

Ekki er hægt að kaupa stakar ferðir. Athugið að mörg stéttarfélög og fyrirtæki veita styrk gegn framvísun á kvittun frá Fjallafélaginu.

INNIFALIÐ Í VERÐI
  • Leiðsögn, fræðsla og utanumhald í yfir 20 ferðum
  • Afsláttarkjör hjá samstarfsaðila – Fjallakofinn
EKKI INNIFALIÐ Í VERÐI
  • Gisting þegar þess þörf
  • Akstur / rúta
  • Persónulegur búnaður s.s. ísöxi og jöklabroddar þegar þess er þörf
Nánari upplýsingar

Miðvikudagsgöngurnar munu hefjast kl. 18:00 og laugardagsgöngurnar kl. 10:00 nema annað sé tekið fram. Hópurinn hittist við upphafsstað göngunnar á miðvikudögum. Á laugardögum verður í boði að hittast á höfuðborgarsvæðinu á fyrirfram ákveðnum stað og sameinast í bíla. Ítarlegar upplýsingar eru sendar í tölvupósti fyrir hverja göngu. Ef veðurspá er óhagstæð er ferðum í sumum tilfellum frestað til næsta dags. Einnig kann í einhverjum tilvikum að vera nauðsynlegt að gera aðrar breytingar á dagskránni svo sem að ganga á annað fjall en upphaflega var áætlað eða að fella göngu niður vegna sérstaklega óhagstæðra skilyrða. Ítarlegar upplýsingar eru sendar í tölvupósti tímanlega fyrir göngu og þurfa því þátttakendur ávallt að fylgjast með tölvupósti sínum. Einnig er Facebook hópur notaður til samskipta.

Ítarlegan búnaðarlista má finna hér.

Fyrir hverja?

Fjallabandalagið hentar öllum sem vilja stunda útivist og fjallgöngur allt árið. Sumar göngurnar eru nokkuð krefjandi en allir hraustir einstaklingar sem eru í ágætri þjálfun ráða vel við verkefnin. Engu að síður gerir Fjallafélagið þá lágmarkskröfu til getu þátttakenda að þeir geti haldið í við hópinn á rólegri göngu.

Öryggismál, tryggingar og skilmálar

Mikil áhersla er lögð á að tryggja hámarks öryggi í öllum ferðum Fjallafélagsins. Í ákveðnum göngum er skylda að vera með viðeigandi jöklabúnað (ísöxi/jöklabrodda/belti) og verður send út tilkynning um slíkt með fyrirvara. Mikilvægt er að þátttakendur taki vel eftir þessum atriðum og fari eftir leiðbeiningum fararstjóra. Fjallgöngur fela ávallt í sér áhættu og eru þátttakendur á eigin ábyrgð í ferðunum. Þátttakendur eru ekki tryggðir í ferðum með Fjallafélaginu og eru hvattir til að snúa sér til tryggingafélags síns og kaupa þar viðeigandi tryggingar. Skilmálar Fjallafélagsins eru aðgengilegir hér. Þátttökugjald verður ekki endurgreitt eftir 1. febrúar.

TÍMALENGD

12 mánuðir

TEGUND FERÐAR

Gönguhópur

INNIFALIÐ

Sjá lýsingu

ERFIÐLEIKASTIG

VERÐ

96.000 kr.

Product price
Additional options total:
Samtals:

DAGSKRÁ

Dagsetning Dagur Verkefni Hæð m. Hækkun m. Lengd km.
20. janúar Laugardagur Hraunsnefsöxl 480 450 7
14. febrúar Miðvikudagur Tækniæfing, ísaxir og broddar 350 150 3
17. febrúar Laugardagur Djúpidalur og Bollafell 509 500 14
13. mars Miðvikudagur Reykjaborg og Hafrafell (Lali) við Hafravatn 286 285 6
16. mars Laugardagur Skálatindur og Esjuhorn 900 1100 15
10. apríl Miðvikudagur Sandfell í Kjós 395 350 5
13. apríl Laugardagur Hrútaborg og Kolbeinsstaðafjall 840 890 11
8. maí Miðvikudagur Sköflungur 440 220 6
11. maí Laugardagur Hádegishyrna og Mórauðihnúkur 967 950 14
5. júní Miðvikudagur Snóksfjall 590 560 6
8. júní Laugardagur Tindarnir í Kerlingarfjöllum
6. júlí Laugardagur Ýmir og Ýma
27. júlí Laugardagur Blátindur og Kristínartindar – Helgarferð
28. ágúst Miðvikudagur Lokufjall og Hnefi
31. ágúst Laugardagur Prestahnjúkur og Geitlandsjökull
25. sept Miðvikudagur Rauðuhnúkar
28. sept Laugardagur Ljósufjöll
23. okt. Miðvikudagur Grímansfell
26. okt. Laugardagur Syðsta-Súla
20. nóv Miðvikudagur Rauðhóll Esju
23. nóv Laugardagur Skarðsmýrarfjall og Innstidalur hringur
28. desember Laugardagur Úlfarsfell