Fjallabandalagið

2026

Fjallabandalagið höfðar til þeirra sem vilja gera útivist og fjallgöngur að lífsstíl og halda sér þannig gangandi allt árið. Í hverjum mánuði eru tvær göngur, miðvikudagskvöld og laugardagur. Á tímabilinu maí til ágúst förum við stundum lengri ferðir um helgar og er þá gist eina eða fleiri nætur.

Fjallabandalagið í hnotskurn
  • Gengið á 4 vikna fresti allt árið – á miðvikudögum og laugardögum
  • 22 fjallaferðir í heildina, þar tvær helgarferðir
  • Göngur í hverjum mánuði frá janúar til desember
  • Gott utanumhald og frábær félagsskapur
Umsjónarmenn

Bjarni Eyfjörð Friðriksson, Gerða Sigmarsdóttir, Hafdís Huld Björnsdóttir, Haraldur Örn Ólafsson og Hinrik Sigurður Jóhannesson.

Árgjald

Árgjaldið er 105.000 kr. Veittur er 30% afsláttur fyrir einstaklinga frá sama lögheimili (makagjald).

Ekki er hægt að kaupa stakar ferðir. Athugið að mörg stéttarfélög og fyrirtæki veita styrk gegn framvísun á kvittun frá Fjallafélaginu.

INNIFALIÐ Í VERÐI
  • Leiðsögn, fræðsla og utanumhald í 22 ferðum
  • 15% afsláttur í Fjallakofanum
  • 25% afsláttur í Fálkaklett
EKKI INNIFALIÐ Í VERÐI
  • Gisting þegar þess þörf
  • Akstur / rúta
  • Persónulegur búnaður s.s. ísöxi og jöklabroddar þegar þess er þörf
Nánari upplýsingar

Miðvikudagsgöngurnar munu hefjast kl. 18:00 og laugardagsgöngurnar kl. 10:00 nema annað sé tekið fram. Hópurinn hittist við upphafsstað göngunnar á miðvikudögum. Á laugardögum verður í boði að hittast á höfuðborgarsvæðinu á fyrirfram ákveðnum stað og sameinast í bíla. Ítarlegar upplýsingar eru sendar í tölvupósti fyrir hverja göngu. Ef veðurspá er óhagstæð er ferðum í sumum tilfellum frestað til næsta dags. Einnig kann í einhverjum tilvikum að vera nauðsynlegt að gera aðrar breytingar á dagskránni svo sem að ganga á annað fjall en upphaflega var áætlað eða að fella göngu niður vegna sérstaklega óhagstæðra skilyrða. Ítarlegar upplýsingar eru sendar í tölvupósti tímanlega fyrir göngu og þurfa því þátttakendur ávallt að fylgjast með tölvupósti sínum. Einnig er Facebook hópur notaður til samskipta.

Ítarlegan búnaðarlista má finna hér.

Fyrir hverja?

Fjallabandalagið hentar öllum sem vilja stunda útivist og fjallgöngur allt árið. Sumar göngurnar eru nokkuð krefjandi en allir hraustir einstaklingar sem eru í ágætri þjálfun ráða vel við verkefnin. Engu að síður gerir Fjallafélagið þá lágmarkskröfu til getu þátttakenda að þeir geti haldið í við hópinn á rólegri göngu.

Öryggismál, tryggingar og skilmálar

Mikil áhersla er lögð á að tryggja hámarks öryggi í öllum ferðum Fjallafélagsins. Í ákveðnum göngum er skylda að vera með viðeigandi jöklabúnað (ísöxi/jöklabrodda/belti) og verður send út tilkynning um slíkt með fyrirvara. Mikilvægt er að þátttakendur taki vel eftir þessum atriðum og fari eftir leiðbeiningum fararstjóra. Fjallgöngur fela ávallt í sér áhættu og eru þátttakendur á eigin ábyrgð í ferðunum. Þátttakendur eru ekki tryggðir í ferðum með Fjallafélaginu og eru hvattir til að snúa sér til tryggingafélags síns og kaupa þar viðeigandi tryggingar. Skilmálar Fjallafélagsins eru aðgengilegir hér. Þátttökugjald verður ekki endurgreitt eftir  1. febrúar.

TÍMALENGD

12 mánuðir

TEGUND FERÐAR

Gönguhópur

INNIFALIÐ

Sjá lýsingu

ERFIÐLEIKASTIG

VERÐ

105.000 kr.

Uppselt er í ferðina / hópinn. Þú getur skráð þig á biðlista og við látum þig vita um leið og hægt er að skrá sig að nýju.

DAGSKRÁ

Dagsetning Dagur Verkefni Hæð m. Hækkun m. Lengd km. Tími (klst.)
17. janúar Laugardagur Nesjaskyggnir og mælt með sundi í Laugaskarði 770 600 8 3,5 – 4
11. febrúar Miðvikudagur Stóra Kóngsfell og Drottning 620 280 5 2,5 – 3
14. febrúar Laugardagur Skarðsmýrarfjöll, ísaxaræfing 570 380 10 4 – 5
11. mars Miðvikudagur Stóri Meitill 514 280 6 2 – 2,5
14. mars Laugardagur Vörðufell og mælt með Laugarás Lagoon að lokinni göngu 400 370 7,5 3 – 4
21. mars Laugardagur Aukaferð: Gönguskíði utanbrautar, leiðarval eftir aðstæðum 450 220 12 3 – 4
15. apríl Miðvikudagur Vífilsfell 655 450 6,5 3
18. apríl Laugardagur Heiðarhorn og Skarðshyrna 1060 1100 13 6
13. maí Miðvikudagur Fálkaklettur via ferrata 250 220 5 3
16. maí Laugardagur Lýsuhyrna, Smjörhnjúkur og Ánahyrna á Snæfellsnesi 900 1200 12 6 – 7
3. júní Miðvikudagur Trölladyngja 378 260 4 2
6. júní Laugardagur Háasúla 1015 650 11 5 – 6
3-5. júlí Helgarferð Útburðarskálahnjúkur og út í Fjörður 1174 1400 14 7 – 9
7-9. ágúst Helgarferð Kötlujökull og Huldufjöll 400 1200 21 10
26. ágúst Miðvikudagur Þverfell við Uxahryggi 654 560 7 3
29. ágúst Laugardagur Löðmundur við Landmannahelli, valkvæð helgarferð með Rauðfossafjöllum daginn eftir 1076 600 8,5 4
23. September Miðvikudagur Sogin frá Djúpavatni 400 400 7 3
26. September Laugardagur Jarlhettur 1000 600 10 4 -5
10. október Laugardagur Raufarfell 755 1000 12 5 – 6
14. október Miðvikudagur Reykjaborg og Lali 270 200 7 2,5
18. nóvember Miðvikudagur Húsfell 300 300 10 3
21. nóvember Laugardagur Stóri Hrútur og Fagradalshraun 360 450 10 4
27. desember Sunnudagur Úlfarsfell 300 200 4 2