Albanía – menning, saga og fjallgöngur 2027
05.09.2027
Ferðin er blanda af krefjandi göngum um fjallasali norður Albaníu, ásamt því að kynnast stórmerkri sögu og menningu landsins, upplifa einstaka matarmenningu sem líkist helst Grískri matarmenningu og ekki síst upplifa ógleymanlegt ævintýri með Fjallafélögum.
Við byrjum í Tirana, förum norður til Shkodra til að taka inn menningu og sögu landsins, höldum þaðan inn í hjarta Albönsku Alpana. Þar göngum við frá Theth til Valbona dalsins sem er frægasta gönguleið landsins. Næsta ganga er úr alfaraleið þar sem gengin er hringur frá Valbona með viðkomu á Zla Kolata 2.534 mtr. sem er hæsta fjall Svartfjallalands og þaðan í lítið fjallaþorp langt utan alfararleiðar þar sem hópurinn gistir. Daginn eftir er hringnum lokað gengið aftur niður í Valbona dalinn. Þá er komið að því að slaka aðeins á og njóta náttúrunnar með siglingu á Komani Lake þetta er ógleymanleg sigling á þröngu og kristaltæru vatni með himinháa klettaveggi og fallega náttúru. Frðinni líkur aftur í Shkodra þar sem hægt er að velja á milli Kayjak ferðar á Skhodra vatni, hjólreiðatúrs eða bara að njóta, kíkja í verslanir og kanna veitingastaði borgarinnar.
Albanía er ekki þekktasti ferðamannastaður Evrópu, en líklega mun það breytast hratt á næstu árum. Landið er hluti af Balkanskaga og er ótrúlega fallegt með háum fjöllum, djúpum dölum og einstökum náttúruperlum.
Albanía var lokaðasta land Evrópu og var undir hæl einræðisherra frá 1946 til 1988. Það má segja að farið sé í nokkurs konar tímavél því að tilfinningin er oft eins og maður sé kominn áratugi aftur í tímann. Innviðir eru hægt og bítandi að byggjast upp, vegakerfið er að styrkjast og ferðamenn eru að uppgötva þetta stórkostlega land.
Ferðamenn eru sérstaklega velkomnir og alls staðar er þeim tekið með kostum og kynjum. Maturinn er einstaklega bragðgóður og ferskur, líkastur grískum mat, þá sérstaklega þar sem ferðin verður í suður Albaníu nærri grísku landamærunum.
Þessi ferð lætur engan mann ósnortinn og maður upplifir sterkt að maður verður að koma fljótt aftur til að upplifa meira af stórkostlegri náttúru landsins, gestrisni heimamanna og að fá að upplifa fallegt mannlíf í frumstæðasta landi Evrópu.
Fararstjóri
Fararstjóri er Erlendur Pálsson. Eftir ársferðalag um Evrópu segir hann að Albanía sé það land sem stóð upp úr á ferðalaginu og brennur fyrir að kynna Albaníu fyrir ferðaglöðum Íslendingum.
Fjöldi þátttakenda
Lágmark 10 og hámark 20
Innifalið í ferðinni
- 7 nætur á 4* hótelum
- 2 nótt í fjallaþorpum á fallegum gistiheimilium
- Allur matur sem er tekin fram í ferðalýsingu
- Akstur
- Íslenskur og albanskir leiðsögumenn
- Aukagjald fyrir einbýli er 69.000 kr.
Ekki Innifalið
- Flug
- Máltíðir sem eru ekki teknar fram í leiðarlýsingu
- Ferðatrygging
- Drykkir nema annað sé tekið fram.
- Ferðir, aðgangseyrir eða viðburðir sem eru ekki í leiðarlýsingu
- Þjórfé
Tryggingar
Athugið að engar tryggingar eru innifaldar í verði ferðarinnar og mikilvægt er að þátttakendur séu að fullu tryggðir. Fjallafélagið mælir með að þátttakendur kaupi sérstaka forfallatryggingu um leið og ferðin er bókuð. Mikilvægt er að ganga úr skugga um að tryggingin nái yfir kostnað við ferðina í heild sinni (ekki aðeins yfir fargjaldið og gistikostnaðinn)
Flug
Það er ekkert beint flug til Albaníu frá Íslandi. Það má gera ráð fyrir að flugið kosti um kr. 80-100 þúsund.- báðar leiðir. Fjallafélagið mun mæla með flugleiðum þegar nær dregur.
Tungumál
Flestir Albanir tala góða ensku en í afskekktum héruðum er líklegt að eina tungumálið sé albanska. Alla ferðina verður leiðsögumaður með hópnum sem talar bæði albönsku og ensku.
Öryggi
Þrátt fyrir það sem margir halda er Albanía líklega eitt af friðsælustu og öruggustu löndum Evrópu. Hópurinn verður í góðum höndum leiðsögumanna.
Bókun
Hægt er að bóka ferðina með því að smella á “Bóka ferð” og greiða staðfestingargjald. Einnig er hægt að senda tölvupóst á fjallafelagid@fjallafelagid.is. Staðfestingargjald er kr. 45.000. Fjallafélagið sendir póst til þátttakenda þegar lágmarksþátttöku hefur verið náð og brottför staðfest.
Skilmálar
Mikilvægt er að þátttakendur kynni sér skilmála Fjallafélagsins sem hægt er að nálgast hér: https://fjallafelagid.is/skilmalar/
TÍMALENGD
10 dagar
TEGUND FERÐAR
Utanlandsferð
INNIFALIÐ
Sjá ferðalýsingu
ERFIÐLEIKASTIG
VERÐ
475.000 kr
Availability: In stock
DAGSKRÁ
Dagur 1 – 5. September – Komudagur – Tirana
Brottför frá Keflavík 14:10 lendum í Tirana um 23:30 og förum beint á hótelið í miðborginni.
Gisting í Tirana
Dagur 2 – 6. September – Skoðunarferð um Tirana og ekið til Shkodra

Innifalið: Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður.
Gisting í Shkodra
Dagur 3 – 7. September – Skoðunarferð um Shkodra

Innifalið: Morgunverður og skoðunarferð.
Gisting í Shkodra
Dagur 4 – 8. September – Shkodra til Theth létt ganga.

Innifalið: Allar máltíðir, akstur og gisting á gistiheimili í Theth.
Dagur 5 – 9. September – Ganga yfir Valbona Pass frá Theth – Valbona valley
Þá er komið að alvöru göngudögum ferðarinnar. Þennan dag er farin gönguleiðin frá Theth til Valbona. Þetta er um 16 km ganga með um 1.000 mtr hækkun sem tekur um 6 til 7 tíma. Gengið er yfir Valbona Pass sem er fræg gönguleið með stórkostlega fjallasýn og fjölbreytta náttúru. Heimamaður og fjallaleiðsögumaður leiðir hópinn.
Innifalið: Morgunverður, hádegisverður (nesti), kvöldverður og fjallaleiðsögn frá heimamanni. Gisting á Spa hóteli í Valbona
Dagur 6 – 10. September – Gengið úr Valbona dalnum á hæsta tind Svartfjallalands þaðan í lítið afskekkt fjallaþorp.

Innifalið: Allar máltíðir, nesti, fjallaleiðsögn frá heimamanni og gisting í gistiheimili í þorpinu.
Dagur 7 – 11. September – Létt ganga frá Çerem niður í Valbona dalinn
Eftir góðan morgunverð lokum við hringnum og göngum við aftur niður í Valbona dalinn á hótelið þar sem gangan hófst deginum áður. Þetta er létt ganga um 10 km með 800 m lækkun. Eftir krefjandi göngudaga getur hópurinn t.d. slakað á í Spa aðstöðu hótelsins eftir afrek síðustu dagar, hádegisverður (nesti), kvöldverður og fjallaleiðsögn frá heimamanni. Gisting á Spa hóteli í Valbona.
Dagur 8 – 12. September – Sigling á Komani vatni og ekið til Shkodra

Innifalið: Morgunverður, hádegisverður og siglingin.
Ekki innifalið: Kvöldverður.
Gist í Shkodra
Dagur 9 – 13. September – Shkodra – Útivist, hjólaferð, kajaksigling eða annað sem kemur í hug.

Innifalið: Morgunverður
Dagur 10 – 14. September – Heimferðardagur.
Við keyrum til Tirana-flugvallar og komum tímanlega fyrir brottför sem er 18:30. Áætlað er að lenda á íslandi um miðnætti.
Innifalið: Morgunmatur.
.

































