1 sæti laust – Perlur Albaníu
07.05.2024
1 sæti laust vegna forfalla
Fjallafélagið býður lúxus ferð til Albaníu.
Áhersla verður lögð á fallega gististaði, skemmtilegar göngur í stórkostlegri náttúru um suður Albaníu, heimsóknir á sögulega staði, góðan mat og lúxus strandlíf við Adríahafið. Hópnum verður ekið í Merzedes Benz smárútu, en til gamans má nefna að talað er um að Benzar fari til Albaníu að deyja.
Albanía er ekki þekktasti ferðamannastaður Evrópu, en líklega mun það breytast hratt á næstu árum. Landið er hluti af Balkanskaga og er ótrúlega fallegt með háum fjöllum, djúpum dölum og einstökum náttúruperlum.
Albanía var lokaðasta land Evrópu og var undir hæl einræðisherra frá 1946 til 1988. Eftir að hann kvaddi hófst uppgangur sem síðan hrundi þegar ríkissjóður landsins tapaðist í pýramída svindli. Það má segja að farið sé í nokkurs konar tímavél því að tilfinningin er oft eins og maður sé kominn áratugi aftur í tímann. Innviðir eru hægt og bítandi að byggjast upp, vegakerfið er að styrkjast og ferðamenn eru að uppgötva þetta stórkostlega land. Í Albaníu búa um 2,8 milljónir manna.
Ferðamenn eru sérstaklega velkomnir og alls staðar er þeim tekið með kostum og kynjum. Maturinn er einstaklega bragðgóður og ferskur, líkastur grískum mat, þá sérstaklega þar sem ferðin verður í suður Albaníu nærri grísku landamærunum.
Þessi ferð lætur engan mann ósnortinn og maður upplifir sterkt að maður verður að koma fljótt aftur til að upplifa meira af stórkostlegri náttúru landsins, gestrisni heimamanna og að fá að upplifa fallegt mannlíf í frumstæðasta landi Evrópu.
Fararstjóri
Fararstjóri er Erlendur Pálsson sem lauk á síðasta ári ársferðalagi um Evrópu og segir hann að Albanía sé það land sem stóð upp úr á ferðalaginu og brennur fyrir að kynna Albaníu fyrir ferðaglöðum Íslendingum.
Fjöldi þátttakenda
Lágmark 10 og hámark 12
Innifalið í ferðinni
- Gisting í tveggja manna herbergjum/tjöldum. Aukagjald fyrir einbýli er 49.000 kr.
- 5 nætur á 4* hótelum
- 2 nætur í fallegu afskekktu gistiheimili
- 2 nætur í lúxus “glamping” tjöldum
- Allur matur sem er tekin fram í ferðalýsingu
- Akstur
- Íslenskur og albanskir leiðsögumenn
Ekki Innifalið
- Flug
- Máltíðir sem eru ekki teknar fram í leiðarlýsingu
- Ferðatrygging
- Drykkir nema annað sé tekið fram.
- Ferðir, aðgangseyrir eða viðburðir sem eru ekki í leiðarlýsingu
- Þjórfé
Tryggingar
Athugið að engar tryggingar eru innifaldar í verði ferðarinnar og mikilvægt er að þátttakendur séu að fullu tryggðir. Fjallafélagið mælir með að þátttakendur kaupi sérstaka forfallatryggingu um leið og ferðin er bókuð. Mikilvægt er að ganga úr skugga um að tryggingin nái yfir kostnað við ferðina í heild sinni (ekki aðeins yfir fargjaldið og gistikostnaðinn)
Flug
Það er ekkert beint flug til Albaníu frá Íslandi. Það má gera ráð fyrir að flugið kosti um kr. 170.000.- báðar leiðir. Fjallafélagið mun mæla með flugleiðum þegar nær dregur.
Tungumál
Flestir Albanir tala góða ensku en í afskekktum héruðum er líkleg að eina tungumálið sé albanska. Alla ferðina verður leiðsögumaður með hópnum sem talar bæði albönsku og ensku.
Öryggi
Þrátt fyrir það sem margir halda er Albanía líklega eitt af friðsælustu og öruggustu löndum Evrópu. Hópurinn verður í góðum höndum leiðsögumanna.
Bókun
Hægt er að bóka ferðina með því að smella á “Bóka ferð” og greiða staðfestingargjald. Einnig er hægt að senda tölvupóst á fjallafelagid@fjallafelagid.is. Staðfestingargjald er kr. 45.000. Fjallafélagið sendir póst til þátttakenda þegar lágmarksþátttöku hefur verið náð og brottför staðfest.
Skilmálar
Mikilvægt er að þátttakendur kynni sér skilmála Fjallafélagsins sem hægt er að nálgast hér: https://fjallafelagid.is/skilmalar/
TÍMALENGD
10 dagar
TEGUND FERÐAR
Utanlandsferð
INNIFALIÐ
Sjá ferðalýsingu
ERFIÐLEIKASTIG
VERÐ
370.000 kr
Availability: In stock
DAGSKRÁ
Dagur 1 – þriðjudagurinn 7. maí – Komudagur og ekið til Tirana
Þennan dag er komið til höfuðborgarinnar Tírana með flugi. Fararstjórar taka á móti hópnum og er í framhaldinu ekið á hótel í miðborginni þar sem gist er um nóttina.
Innifalið: Akstur frá flugvelli, og gisting á 4 stjörnu hóteli í miðborg Tirana.
Dagur 2 – miðvikudagur 8. maí – Tirana til Berat
Vaknað ekkert allt of snemma og tími fyrir gönguferð um miðbæ Tírana og stefnum á að aka suður á bóginn fljótlega fyrir hádegið. Við stoppum við vatnasvæðið í Belsh þar fær hópurinn léttan hádegisverð og stund til að kæla sig í vatninu ef hitinn er mikill. Eftir Belsh er 40 mínútna akstur ökum við til bæjarins Bera sem er á heimsminjaskrá Unesco. Þar gistum við á fallegu hóteli sem er rétt við fornan bæjarmúrinn. Eftir að hópurinn er kominn inn á hótel er einhver tími til að rölta um bæinn og fræðast um merkilega sögu bæjarins. Um kvöldið snæðir hópurinn á frábærum veitingastað hótelsins.
Innifalið: Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður. Akstur og gisting á 4 stjórnu hóteli.
Dagur 3 – uppstigningardagur fimmtudaginn 9. maí – Göngudagur Mt. Tomorr
Við tökum daginn snemma og ökum áleiðis að rótum á Mt.Tomorr sem er 2,416 metrar og er hæsta fjall mið Albaníu. Við fjallið verða aðstæður metnar um hversu löng gangan verður með tilliti til aðstæðna í fjallinu. Þetta er sögulegt fjall og í trú margra Albana er fjallið heimili guðanna rétt eins og Olympus er fjall guðanna í Grikklandi. Í ágúst á hverju ári fara kaþólskir íbúar landsins pílagrímsgöngu á fjallið og í huga Bektashi múslíma er fjallið heilagt.
Af fjallinu er stórkostlegt útsýni í allar áttir, gróðurfar og dýralíf er einstakt á fjallinu. Gera má ráð fyrir að gangan taki um 6 tíma. Þegar hópurinn kemur til baka til Berat er tími fyrir sturtu og örstutt rölt á þekktan veitingastað á svæðinu sem heitir Cocos, þar bíða eigandinn (yfirleitt aðeins við skál), eiginkona og dóttir sem útbúa fyrir hópinn dýrindis veislukost.
Innifalið: Morgunmatur, nestisbox (hádegisverður) og kvöldverður á Cocos ásamt gistingu á 4 stjörnu hóteli.
Dagur 4 – föstudagur 10. maí – Berat til Permet
Við þurfum ekki að vakna allt of snemma eftir langan uppstigningardag. Eftir morgunverð, ökum við eftir nýuppgerðum vegi suður á bóginn.Í hádeginu snæðum við mat á glæsilegum veitingastað við Bylis rústirnar sem eru frá 350 fyrir Krist, þar á meðal er leikhús sem tók 7500 manns í sæti. Það er nýlega búið að malbika veg að svæðinu og er því hingað til lítið heimsótt af ferðamönnum. Ef tími gefst eru skoðaðar náttúrlegar heitar laugar í Benje og geta þeir sem viljað skellt sér laugarnar. Ferðadagurinn endar í litlu þorpi sem heitir Leusa þar er fallegt gistiheimili sem hópurinn gistir í.
Innifalið: Allar máltíðir, akstur og gisting á afskekktu fallegu gistiheimili.
Dagur 5 – laugardagur 11. maí – Ganga um Zagoria fjallgarðinn
Eftir góðan morgunverð verður gengið um Zagoria fjallgarðinn sem teygir sig alla leið til Grikklands. Þetta er brött ganga sem verðlaunar þá sem leggja í gönguna með stórkostlegu útsýni yfir Vjosa dalinn. Gert er ráð fyrir að gangan taki um 6 tíma.
Um kvöldið fáum við ríkulegan kvöldverð að hætti Albana og slökun í stórkostlegri náttúru Zagora þjóðgarðsins.
Innifalið: Morgunverður, nesti í fjallgönguna og kvöldverður. Einnig fjallaleiðsögn frá heimamanni
Dagur 6 – mæðradagurinn sunnudagur 12 maí – Gjirokastra – Nivicha
Aftur er ekið af stað og áfram suður. Við heimsækjum bæinn Gjirokastra sem er líka á heimsminjaskrá Unesco. Í bænum skoðum við virki sem var byggt á Napóleon tímanum, þetta er líka fæðingarbær Enver Hoxa sem var einræðisherra Albaníu en hann hélt landinu lokuðu frá umheiminum á svipaðan hátt og Norður Kórea. Hópurinn fær leiðsögn um bæinn og fræðist um merka sögu Gjirokastra og Albaníu.
Þegar þessu er lokið ökum við á fáfarnar slóðir inn á milli fjalla sem nefnist Kurvelesh á milli fjallanna er hrikalegt Nivica gil og er eitt lengsta gil Evrópu um 40 km langt. Þetta er svæði sem fáir túristar hafa komið til enda var vegurinn illfær til 2022 þegar hann var malbikaður.
Þar munum við gista í 2 nætur í lúxus “Glamping” tjöldum sem eru uppsett undir stráþaki og er útsýnið frá tjöldunum engu líkt. Tjöldin eru 2 manna með baðherbergi.
Innifalið: Morgunverður, kvöldverður, leiðsögn í Gjirokastra, akstur og gisting í lúxus tjöldum.
Dagur 7 – mánudagur 13 maí – Göngudagur um Nivicha
Þessi dagur er göngudagur og við stefnum á hæsta tind fjallgarðsins sem heitir Këndrevicës 2122 metrar, enn og aftur þarf að meta aðstæður með hversu hátt við komumst en það getur verið talsverður snjór á þessum tíma. Gangan tekur um 6 – 8 tíma.
Eftir gönguna bíður okkar glæsileg kvöldmáltíð og önnur ævintýra nótt í glamping tjöldunum
Innifalið: Allar máltíðir, nesti, fjallaleiðsögn frá heimamanni og gisting í lúxus tjöldum.
Dagur 8 – þriðjudagur 14 maí – Nivica til Vlore
Eftir stórkostlega náttúruupplifun er stefnan tekin á strönd Adríahafsins. Við ökum meðfram ströndinni, stoppum á nokkrum vel völdum stöðum á leiðinni og snæðum hádegisverð í Himare. Ekið verður yfir Llogora Pass en þaðan er útsýni yfir hafið í vestur og hálendi Albaníu í austur. Við endum aksturinn á Albönsku Rivierunni þar sem sjórinn er kristal tær. Það er dásemd að snorkla og skoða náttúruna í sjónum eða bara að slaka á á einkaströnd sem tilheyrir hótelinu sem við gistum í næstu 2 sólahringa.
Innifalið: Morgunverður og gisting á 4 stjörnu hóteli ásamt akstri.
Ekki innifalið: Hádegis og kvöldverður og afþreying á svæðinu.
Dagur 9 – miðvikudagur 15 maí – Strandlíf.
Áframhaldandi strandlíf á Rivierunni. Fyrir þá sem hafa ekki þolinmæði fyrir strandlífi er möguleiki á að fara í bátsferð og skoða Karaburun skagann sem hefur sérstakar kletta myndanir, fallegar strendur og kristalstær sjórinn glampar undir skipinu.
Innifalið: Morgunverður og gisting á 4 stjörnu hóteli.
Ekki innifalið: Hádegis og kvöldverður. Bátsferð eða afþreying á svæðinu.
Dagur 10 – fimmtudagur 16. maí – Heimferðardagur.
Stefnt er á að fljúga heim síðdegis. Frá ströndinni er ekki nema tveggja tíma akstur á flugvöllinn í Tírana og því liggur ekkert á. Hópurinn hefur því viðkomu á Uka Farm sem er vínbúgarður með frábærum veitingastað skammt frá flugvellinum.
Innifalið: Morgunmatur og hádegismatur með vínsmökkun ásamt akstri á flugvöllinn.