Grunnnámskeið - Utanbrautar gönguskíði
24.1.2021
**UPPSELT**
Grunnnámskeið Fjallafélagsins í notkun utanbrautar gönguskíða. Það er fátt skemmtilegra en að ganga á gönguskíðum og á þessu námskeiði kennum við hvernig við getum farið út fyrir brautina og gengið frjáls um ótroðnar slóðir. Markmiðið með námskeiðinu er að þátttakendur öðlist góðan grunn í að ferðast á skíðum og hafi þekkingu til að fara í dagsferðir á utanbrautar gönguskíðum á eigin vegum eða með Skíðabandalaginu. Námskeiðið hentar jafnt fyrir byrjendur og þá sem eru með ákveðinn grunn á skíðum.
Á námskeiðinu verður ítarleg fræðsla um búnað svo sem skíði, skó, stafi, skinn og klæðnað. Þá verður kennsla í gönguskíðatækni, m.a. göngu á jafnsléttu, göngu upp brekkur og skíðun niður brekkur. Þá verður fræðsla um rötun, veðurspár, fjarskipti og næringu. Námskeiðið samanstendur af tveimur dögum á skíðum og einum fyrirlestri. Fyrri daginn verður fræðsla og skíðaæfingar en seinni daginn verður farið í 4 tíma skíðagöngu með kennslu og æfingum í grunnatriðum vetrarferðamennsku. Á fyrirlestrinum verður farið yfir helstu öryggismál og fróðleik um búnað.
Utanbrautar gönguskíði eru einnig nefnd ferðaskíði. Þetta eru nokkuð breið gönguskíði með stálköntum. Utanbrautar gönguskíði skiptast í riffluð skíði og vax-skíði. Í sumum tilvikum eru festingar fyrir stutt skinn (einnig nefnd hálf-skinn) sem nota má þegar farið er upp brekkur. Við mælum með skíðum með grófum rifflum (fish scale/waxless) þar sem þau eru auðveld í notkun og henta vel íslenskum aðstæðum.
Staðsetning námskeiðsins verður ákveðin út frá veðri og snjóalögum og tilkynnt í tölvupósti. Þátttakendur sjá sjálfir um að koma sér á staðinn en miðað er við að akstur sé innan við klukkustund frá höfuðborgarsvæðinu. Dæmi um staðsetningu er Mosfellsheiði, Hengilssvæði, Þrengsli, Bláfjöll, Kaldidalur og Lyngdalsheiði.
Hámarksfjöldi er 20.
Kennari á námskeiðinu er Haraldur Örn Ólafsson.
Dagsetningar námskeiðsins kunna að breytast vegna veðurs, snjóalaga eða samkomutakmarkana. Í slíkum tilvikum verður fundin ný dagsetning og námskeiðið haldið þegar aðstæður leyfa.
DAGSKRÁ
Sunnudagur 24. janúar 2021
Fjallað verður um ferðaskíðabúnað, m.a. skíði, skó, stafi, skinn, klæðnað o.fl. Kennsla í gönguskíðatækni, m.a. göngu á jafnsléttu, göngu upp brekkur og skíðun niður brekkur.
Miðvikudagur 27. janúar 2021
Fyrirlestur um búnað, rötun, veðurspár, fjarskipti, næringu og öryggismál.
Sunnudagur 31. janúar 2021
Framhald á tækniæfingum. Framhald á fræðslu um búnað, rötun, veður, fjarskipti, næringu og öryggismál. Farið verður í 4 tíma skíðagöngu með kennslu og æfingum í grunnatriðum vetrarferðamennsku.