Fjallabandalagið 2023

Allt árið

Fjallabandalagið höfðar til þeirra sem vilja gera útivist og fjallgöngur að lífsstíl og halda sér þannig gangandi allt árið. Í hverjum mánuði eru tvær göngur, miðvikudagskvöld og laugardagur. Á tímabilinu maí til ágúst förum við stundum lengri ferðir um helgar og er þá gist eina eða fleiri nætur.

Fjallabandalagið í hnotskurn
  • Gengið á 4 vikna fresti allt árið – á miðvikudögum og laugardögum
  • 22 fjallaferðir í heildina, þar af a.m.k. ein helgarferð
  • Göngur í hverjum mánuði frá janúar til desember
  • Gott utanumhald og frábær félagsskapur
Fararstjórar

Haraldur Örn Ólafsson og Guðrún Ragna Hreinsdóttir.

Árgjald

Árgjaldið er 89.000 kr. Veittur er 25% afsláttur fyrir einstaklinga frá sama lögheimili (makagjald).

Ekki er hægt að kaupa stakar ferðir. Athugið að mörg stéttarfélög og fyrirtæki veita styrk gegn framvísun á kvittun frá Fjallafélaginu.

INNIFALIÐ Í VERÐI
  • Leiðsögn, fræðsla og utanumhald í yfir 20 ferðum
  • Afsláttarkjör hjá samstarfsaðilum – Fjallakofinn og Garminbúðin
  • Sérstök kynningar- og afsláttarkvöld
EKKI INNIFALIÐ Í VERÐI
  • Gisting þegar þess þörf
  • Akstur / rúta
  • Persónulegur búnaður s.s. ísöxi og jöklabroddar þegar þess er þörf
Nánari upplýsingar

Miðvikudagsgöngurnar munu hefjast kl. 18:00 og laugardagsgöngurnar kl. 10:00 nema annað sé tekið fram. Hópurinn hittist við upphafsstað göngunnar á miðvikudögum. Á laugardögum verður í boði að hittast á höfuðborgarsvæðinu á fyrirfram ákveðnum stað og sameinast í bíla. Ítarlegar upplýsingar eru sendar í tölvupósti fyrir hverja göngu. Ef veðurspá er óhagstæð er ferðum í sumum tilfellum frestað til næsta dags. Einnig kann í einhverjum tilvikum að vera nauðsynlegt að gera aðrar breytingar á dagskránni svo sem að ganga á annað fjall en upphaflega var áætlað eða að fella göngu niður vegna sérstaklega óhagstæðra skilyrða. Ítarlegar upplýsingar eru sendar í tölvupósti tímanlega fyrir göngu og þurfa því þátttakendur ávallt að fylgjast með tölvupósti sínum. Einnig er Facebook hópur notaður til samskipta.

Ítarlegan búnaðarlista má finna hér.

Fyrir hverja?

Fjallabandalagið hentar öllum sem vilja stunda útivist og fjallgöngur allt árið. Sumar göngurnar eru nokkuð krefjandi en allir hraustir einstaklingar sem eru í ágætri þjálfun ráða vel við verkefnin. Engu að síður gerir Fjallafélagið þá lágmarkskröfu til getu þátttakenda að þeir geti haldið í við hópinn á rólegri göngu.

Öryggismál, tryggingar og skilmálar

Mikil áhersla er lögð á að tryggja hámarks öryggi í öllum ferðum Fjallafélagsins. Í ákveðnum göngum er skylda að vera með viðeigandi jöklabúnað (ísöxi/jöklabrodda/belti) og verður send út tilkynning um slíkt með fyrirvara. Mikilvægt er að þátttakendur taki vel eftir þessum atriðum og fari eftir leiðbeiningum fararstjóra. Fjallgöngur fela ávallt í sér áhættu og eru þátttakendur á eigin ábyrgð í ferðunum. Þátttakendur eru ekki tryggðir í ferðum með Fjallafélaginu og eru hvattir til að snúa sér til tryggingafélags síns og kaupa þar viðeigandi tryggingar. Skilmálar Fjallafélagsins eru aðgengilegir hér. Þátttökugjald verður ekki endurgreitt eftir 1. febrúar.

TÍMALENGD

12 mánuðir

TEGUND FERÐAR

Gönguhópur

INNIFALIÐ

Sjá lýsingu

ERFIÐLEIKASTIG

VERÐ

89.000 kr.

Product price
Additional options total:
Samtals:

DAGSKRÁ

 

Dagsetning Vikudagur Tími Verkefni Hæð m. Hækkun m. Lengd km.
21. jan. Laugardagur 10:00 Brekkukambur Hvalfirði 649m. 650m. 7 km.
15. feb. Miðvikudagur 18:00 Arnarhamar og Smáþúfur 592m. 620m. 7 km.
18. feb. Laugardagur 10:00 Esjan endilöng 852m. 970m. 13 km.
15. mars Miðvikudagur 18:00 Úlfarsfell hringur 294m. 280m. 7 km.
18. mars Laugardagur 10:00 Hvalfell 848m. 950m. 14 km.
11. apríl Þriðjudagur 18:00 Fjallafélagshringurinn í Esju 500m. 530m. 8 km.
16. apríl Sunnudagur 10:00 Kálfstindar 877m. 915m. 8 km.
10. maí Miðvikudagur 18:00 Móskarðshnjúkar 807m. 660m. 8 km.
13. maí Laugardagur 10:00 Helgrindur, yfir Snæfellsnes 900m. 990m. 15 km.
7. júní Miðvikudagur 18:00 Trana í Kjós hringur 742m. 770m. 9 km.
10. júní Laugardagur 10:00 Hrútfell á Kili 1.410m. 900m. 16 km.
27-30 júlí Helgarferð Dyrfjöll 1.128m. 1.100m. 17 km.
20. ágúst sunnudagur 10:00 Prestahnjúkur og Geitlandsjökull 1.390m. 1.000m. 13 km.
30. ágúst Miðvikudagur 18:00 Gljúfurdalur og Þverfell 500m. 570m. 7 km.
2. sept. laugardagur 10:00 Stóra Jarlhetta 941m. 700m. 14 km.
27. sept. Miðvikudagur 18:00 Vífilsfell 655m. 450m. 6 km.
30. sept. Laugardagur 10:00 Skessuhorn 964m. 1.100m. 14 km.
25. okt. Miðvikudagur 18:00 Stardalshnúkar og Tröllafoss 419m. 450m. 7 km.
28. okt. laugardagur 10:00 Hafnarfjall hringleið 841m. 850m. 8 km.
22. nóv. Miðvikudagur 18:00 Blákollur 526m. 300m. 5 km.
25. nóv. laugardagur 10:00 Laugarvatnsfjall 630m. 530m. 9 km.
30. des. Laugardagur 10:00 Akrafjall 549m. 500m. 6 km.